Fara í efni
Umræðan

Blak: Tveir öruggir sigrar um helgina

KA-stúlkurnar eftir sigurinn á HK Ými í fyrri leiknum á laugardaginn. Mynd af Facebook-síðu KA.

KA tók á móti HK Ými í tveimur leikjum í efstu deild kvenna í KA-heimilinu um helgina. Báðir leikirnir enduðu með öruggum sigri KA, 3:0, og er KA-liðið ennþá efst í deildinni og hefur ekki tapað hrinu.

Lið HK Ýmis er skipað ungum og efnilegum leikmönnum úr meistaraflokki HK en HK er núverandi Íslandsmeistari. Hjá KA fengu yngri leikmennirnir einnig að spreyta sig í þessum leikjum og nýttu það tækifæri vel.

Hrinurnar í fyrri leiknum á laugardag fóru 25:11, 25:10 og 25:21. Gestirnir bitu aðeins meira frá sér í sunnudagsleiknum en þá vann KA hrinurnar 25:19, 25:10 og 25:21.

Eins og áður segir er KA með forystuna í deildinni eftir að hafa unnið fyrstu fjóra leikina 3:0. Íslandsmeistarar HK hafa líka unnið fyrstu fjóra leikina en þó tapað tveimur hrinum. Næsti leikur KA er einmitt gegn HK þann 7. nóvember og þá má búast við hörkuviðureign tveggja bestu liðanna í deildinni.

Indverskur matur og kvíðaspurningin

Inga Dagný Eydal skrifar
10. október 2026 | kl. 06:00

Réttlát kjördæmaskipan og ofríki stærðfræðinganna

Þóroddur Bjarnason skrifar
07. október 2026 | kl. 15:00

Mikilvægi endurhæfingar í hvetjandi og náttúrulegu umhverfi

Jón Hlöðver Áskelsson skrifar
06. október 2026 | kl. 13:00

Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað

Díana Jóhannsdóttir og Örlygur Hnefill Örlyggson skrifa
05. október 2026 | kl. 15:00

Fróðlegir fundir í kjördæminu

Sigurjón Þórðarson skrifar
05. október 2026 | kl. 07:15

Öflugt atvinnulíf þarf gott aðgengi að lóðum

Sunna Hlín Jóhannesdóttir skrifar
30. september 2026 | kl. 20:15