Fara í efni
Umræðan

Blak: KA-konur höfðu betur í nágrannaslag

KA-stelpurnar höfðu ástæðu til að fagna eftir viðureignina gegn Völsungi. Mynd: FB-síða KA.

KA vann mikilvægan sigur á Völsungi í efstu deild kvenna í blaki, Unbroken-deildinni, í KA-heimilinu í gær. Sigurinn var öruggur og þurfti KA ekki nema þrjár hrinur til að klára leikinn.

Með sigri í leiknum hefðu þær húsvísku getað nálgast KA í öðru sæti deildarinnar en úrslitin þýða að bilið milli liðanna breikkaði talsvert. KA hefur nú 31 stig í öðru sætinu en Völsungur 21 stig í því þriðja. HK er sem fyrr á toppnum og hefur 40 stig en hefur leikið einum leik fleira en KA.

Sigurinn í gær var aldrei í hættu og hrinurnar fóru 25:16, 25:18 og 25:20.

Stelpurnar hafa þó ekki tíma til að fagna lengi því næsta verkefni er strax annað kvöld, föstudag 23. janúar. Þá fara þær austur í Neskaupstað og leika við heimakonur í Þrótti í 8-liða úrslitum bikarkeppninnar.

Fimm prósent af alþingismanni

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
16. febrúar 2026 | kl. 20:00

Meirihlutinn skilaði auðu í stefnumörkun atvinnumála

Sunna Hlín Jóhannesdóttir skrifar
16. febrúar 2026 | kl. 12:50

Pípuhattur borgríkisins

Þóroddur Bjarnason skrifar
15. febrúar 2026 | kl. 08:00

Kæra Akureyri, hvað viltu verða þegar þú verður stór?

Dagný Reykjalín skrifar
13. febrúar 2026 | kl. 16:00

Ingibjörg er ljósið í myrkrinu

Jóhannes Gunnar Bjarnason skrifar
13. febrúar 2026 | kl. 10:40

Allt á floti allsstaðar?

Kristín Helga Schiöth skrifar
11. febrúar 2026 | kl. 09:30