Fara í efni
Umræðan

Bílum lagt vikum saman við Flugsafnið

Undanfarið hefur borið á því að flugfarþegar leggi bílum sínum við Flugsafn Íslands á Akureyrarflugvelli dögum eða jafnvel vikum saman. Þetta kemur fram á Facebook síðu safnsins í dag.

„Að gefnu tilefni: Bílastæði við Flugsafnið eru einungis ætluð starfsfólki og gestum safnsins,“ segir á síðu safnsins.

„Við biðjum fólk vinsamlegast um að virða það að bílastæði safnsins eru einungis fyrir þá sem eiga erindi á safnið. Sett verða upp skilti á næstu dögum með þeim upplýsingum. Jafnframt er vert að vekja athygli á því að hætta er á snjóhruni af þaki hússins þegar þannig viðrar og eru gestir varaðir við því með merkingum nærri inngangi safnsins.“
 
Vafalítið má rekja þetta hátterni flugfarþega til þess að Isavia hóf gjaldtöku á bílastæðum á Akureyrarflugvelli á síðasta.
 
Á vef Isavia segir um bílastæðagjaldið:
 
  • Fyrstu 14 klukkustundirnar á hverjum sólarhring eru fríar.
  • Verð fyrstu 7 dagana er 1.750 kr. fyrir hvern byrjaðan sólarhring og næstu 7 daga er greitt 1.350 kr.
  • Eftir 14 daga lækkar gjaldið niður í 1.200 kr. á sólarhring.
  • Ef ekki er greitt fyrir stæðið 48 klst. frá útkeyrslu berst reikningur í heimabanka að viðbættu 1.490 kr. þjónustugjaldi.

Verulegt rými til framfara

Árni Guðmundsson skrifar
02. júlí 2025 | kl. 11:00

Látið hjarta Akureyrar í friði

Guðjón Heiðar Pálsson skrifar
01. júlí 2025 | kl. 06:00

Fiskeldi og samfélagsábyrgð

Eyjólfur Ármannsson skrifar
30. júní 2025 | kl. 09:45

Hver borgar brúsann?

Ingibjörg Isaksen skrifar
28. júní 2025 | kl. 12:00

Börn eiga skilið að alast upp í friði – þrátt fyrir breyttar aðstæður

Halldóra K. Hauksdóttir skrifar
25. júní 2025 | kl. 16:30

Fréttir af baggavélum og lömbum

Heiða Ingimarsdóttir skrifar
25. júní 2025 | kl. 06:00