Fara í efni
Umræðan

Þór/KA sækir Stjörnuna heim í kvöld

Margrét Árnadóttir skoraði eina mark Þórs/KA í sigurleiknum gegn Grindavík/Njarðvík á dögunum. Margrét hefur er efst á lista markaskorara Þórs/KA, hefur skorað fjögur mörk í deildinni í sumar. Mynd: Ármann Hinrik.

Eftir tvo heimasigra í röð er komið að útileik hjá Þór/KA í Bestu deild kvenna í knattspyrnu með heimsókn í Garðabæinn í dag.

Stjarnan er í 3. sæti deildarinnar með 18 stig úr fyrstu tíu leikjunum, en Þór/KA í 9. sætinu með níu stig. Stutt er á milli liða í neðri hluta deildarinnar og munar aðeins sex stigum á liðinum sem eru í 5. og 10. sæti deildarinnar, Þróttur með 13 stig og Fram með sjö. Þar á milli eru Grindavík/Njarðvík, Valur, Víkingur og Þór/KA.

  • Besta deild kvenna í knattspyrnu, 12. umferð
    Stjörnuvöllur (Samsung-völlurinn í Garðabæ) kl. 18
    Stjarnan - Þór/KA

Fyrri leik Þórs/KA og Stjörnunnar í byrjun maí lauk með 2-2 jafntefli þar sem Margrét Árnadóttir jafnaði á 90. mínútu leiksins. Þór/KA vann Grindavík/Njarðvík 1-0 á heimavelli í síðasta leik og var það annar sigur liðsins í röð og þriðji leikurinn í röð sem liðið heldur markinu hreinu, en Stjarnan gerði 1-1 jafntefli við Val á útivelli eftir fjögurra sigurleikja hrinu þar á undan. 

Freistað með okkar eigin peningum

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
07. ágúst 2026 | kl. 15:00

Hvað gæti ESB gert fyrir Norðurland?

Halldór Jörgen Olesen skrifar
06. ágúst 2026 | kl. 15:00

Ísland og ESB: Horft af brúnni

Þorvaldur Gylfason skrifar
04. ágúst 2026 | kl. 12:30

Hvernig lögum við vanstillt stjórnmál?

Gunnar Már Gunnarsson skrifar
29. júlí 2026 | kl. 11:30

Landbúnaður, fæðuöryggi, byggðamál og ESB

Hólmgeir Karlsson skrifar
27. júlí 2026 | kl. 06:00

Landlægur misskilningur um þjóðaratkvæðagreiðslu

Hjörtur Hjartarson skrifar
23. júlí 2026 | kl. 13:36