Fara í efni
Umræðan

Aron Einar heim í Þór og KR lánar Gyrði

Gyrðir Hrafn Guðbrandsson og Aron Einar Gunnarsson fyrir hádegi áður en Þórsarar hófu æfingu. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Aron Einar Gunnarsson, fyrrverandi landsliðsfyrirliði í knattspyrnu, hefur samið við Þór og mun leika með uppeldisfélaginu út keppnistímabilið. Þá hafa Þórsarar fengið Gyrði Hrafn Guðbrandsson að láni frá KR til haustsins.

Aron Einar, sem er 37 ára, hefur aldrei leikið í efstu deild hér heima. Hann lék fyrst með meistaraflokki Þórs fyrir 20 árum, sumarið 2006, þá nýorðinn 17 ára; tók þátt í sex leikjum í næst efstu deild Íslandsmótsins og þremur í bikarkeppninni áður en leiðin lá utan í atvinnumennsku.  Hann var svo með Þór í sex leikjum í næst efstu deild sumarið 2024.

Gyrðir Hrafn er 27 ára og fjölhæfur leikmaður. Hann mun hafa leikið í öllum stöðum á vellinum nema í marki í efstu deild! Hann lék með KR í yngri flokkunum en var síðan á mála hjá Leikni, þar sem hann lék undir stjórn Sigurðar Heiðars Höskuldssonar, núverandi þjálfara Þórs, m.a. tvö ár í efstu deild. Gyrðir lék síðan með FH 2023 og 2024, en snéri heim í KR fyrir sumarið 2025. Hann hefur tekið þátt í sex leikjum með KR í Bestu deildinni í sumar.

Þórsarar ráðast ekki á garðinn þar sem hann er lægstur í fyrsta leik eftir komu tvímenninganna því topplið Víkings kemur í heimsókn á Þórsvöllinn á morgun.

Svæðisborgin Akureyri

Sigurjón Þórðarson skrifar
13. júlí 2026 | kl. 06:00

Evrópusambandið, meira en tollabandalag

Steinar Harðarson skrifar
10. júlí 2026 | kl. 18:00

Við erum kölluð til kosninga

Gunnar Már Gunnarsson skrifar
09. júlí 2026 | kl. 15:00

Akureyri heilsar þér með bros á vör

Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar
02. júlí 2026 | kl. 21:00

Húsnæðiserfiðleikar ungs fólks innan ESB

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
02. júlí 2026 | kl. 20:45

Drífum í að stytta hringveginn

Jóhannes Gunnar Bjarnason skrifar
02. júlí 2026 | kl. 14:30