Fara í efni
Umræðan

Ágúst Elí frábær og KA í undanúrslit

Ágúst Elí Björgvinsson var frábær í marki KA í sigrinum á ÍBV í dag. Hér ver hann vítakast Hákons Daða Styrmissonar þegar rúmlega tvær og hálf mínúta lifði leiks og staðan var jöfn. Mynd: Ármann Hinrik

KA-menn eru komnir í undanúrslit Íslandsmótsins í handbolta eftir 25:24 sigur á Vestmannaeyingum í KA-heimilinu í dag. Ágúst Elí Björgvinsson var frábær í markinu; hann lagði grunninn að sigri með stórbrotinni frammistöðu en hornamaðurinn Dagur Gautason rak smiðshöggið á gott dagsverk liðsins þegar hann gerði sigurmarkið úr mjög þröngu færi þegar 10 sekúndur voru eftir.

Tvo sigra þurfti til að komast áfram úr átta liða úrslitunum og KA-strákarnir unnu tvíframlengdan leik í Eyjum á fimmtudaginn. Þótt eyjan sé fögur höfðu þeir engan áhuga á að  gera sér ferð þangað aftur í bráð – af augljósum ástæðum.

KA mætir Val í undanúrslitum, það varð ljóst eftir að Valsmenn unnu HK öðru sinni í dag.

Sigurmarkið! Dagur Gautason horfir á eftir boltanum á leið í markið þegar 10 sekúndur voru eftir af leiknum. Bjarni Ófeigur Valdimarsson, lengst til vinstri á myndinni, sendi út í hornið á Dag sem stökk inn í teiginn úr mjög þröngufæri. Mynd: Ármann Hinrik

Meira í kvöld

„Konur gerðu garðinn“ - Látum Kvenfélagsgarðinn blómstra á ný

Herdís Júlía Júlíusdóttir og Elvar Freyr Fossdal Sigfússon skrifa
29. mars 2026 | kl. 15:00

Komast málefni eldri borgara ekki á dagskrá?

Sunna Hlín Jóhannesdóttir og Gunnar Már Gunnarsson skrifa
29. mars 2026 | kl. 06:00

Hvort á maður að hlægja eða gráta?

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
28. mars 2026 | kl. 14:00

Sjókvíaeldi við Eyjafjörð

Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir skrifar
25. mars 2026 | kl. 13:15

Þegar áhuginn vex hraðar en aðstaðan

Kristján H. Kristjánsson skrifar
25. mars 2026 | kl. 13:10

Hvernig byggjum við upp vinnustaði þar sem fólk dafnar?

Hrefna Guðmundsdóttir skrifar
25. mars 2026 | kl. 13:00