Fara í efni
Umræðan

Bikarinn: Þór-FH, KA gegn Hetti eða Neista

Þórsarinn Ágúst Eðvald Hlynsson og félagar mæta FH í bikarkeppninni en Hallgrímur Mar Steingrímsson og samherjar í KA takast á við leikmenn Hattar eða Neista. Myndir: Ármann Hinrik

Þórsarar fá FH-inga í heimsókn í 32-liða úrslitum bikarkeppni karla í knattspyrnu, Mjólkurbikarsins, en KA leikur á útivelli gegn Hetti úr Fellabæ, sem leikur í D-deild Íslandsmótsins, eða Neista frá Djúpavogi sem er utan deilda. Austfirsku liðin eiga eftir að mætast í 64-liða úrslitum. Dregið var í 32-liða úrslitunum í dag.

Lið úr Bestu deildinni, efstu deild Íslandsmótsins, mætast í þremur tilfellum; auk viðureignar Þórs og FH eru það KR-Valur og Fram-Víkingur. Leikir 32-liða úrslitanna fara fram eftir hálfan mánuð, 4.-7. apríl. Keppni í Bestu deildinni hefst nokkrum dögum síðar; Akureyrarfélögin hefja bæði leik sunnudaginn 12. apríl, KA á heimavelli gegn Stjörnunni en Þór á útivelli gegn Val.

Leikir í 32-liða úrslitanna eru þessir, í þeirri röð sem dregið var:

ÍBV - Þróttur R./Víkingur Ó.

Vestri - Leiknir R./Smári

ÍA - Haukar/KFR

Fjölnir/Víðir - HK/BF108

KR - Valur

  • Þór - FH

Stjarnan - Selfoss/Augnablik

Fylkir/KV - KFA/Sindri

Léttir/Stokkseyri/Árbær - Ægir/Reynir S.

Grótta/Úlfarnir - Álftanes/Kári

Tindastóll/Magni - Njarðvík/Hvíti Riddarinn

Elliði/Grindavík - Keflavík

Völsungur/Kormákur/Hvöt - Breiðablik

Fram - Víkingur R.

  • Höttur/Neisti D. - KA

ÍR/Afturelding - Ýmir/KFS/Þorlákur

ESB‑umræðan: Ótti, staðreyndir og upplýst ákvörðun

Halla María Sveinbjörnsdóttir skrifar
23. mars 2026 | kl. 06:00

Jaðarsetning eldri borgara?

Benedikt Sigurðarson skrifar
20. mars 2026 | kl. 19:00

Spörum okkur ekki til óbóta

Sunna Hlín Jóhannesdóttir og Sverre Jakobsson skrifa
19. mars 2026 | kl. 21:30

Mannhvelið: þar sem drengir verða karlmenn

Skúli Bragi Geirdal skrifar
19. mars 2026 | kl. 13:30

Hvað gerðist með „sérlausn“ Írlands?

Erna Bjarnadóttir skrifar
19. mars 2026 | kl. 13:30

Vantar ríki sem geta borgað

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
19. mars 2026 | kl. 13:00