Fara í efni
Umræðan

Afleit staða beggja Akureyrarliðanna

Akureyrarfélögin eru jöfn að stigum í tveimur neðstu sætum Bestu deildar karla, efstu deildar Íslandsmótsins í knattspyrnu, þegar aðeins fjórar umferðir eru eftir þar til deildinni verður skipt í tvennt fyrir lokakaflann. Þá halda þau sex efri áfram keppni um Íslandsmeistaratitilinn og hin sex mætast innbyrðis og keppast um að halda sæti í deildinni. Tvö neðstu falla að loknum fimm viðbótarleikjum.

Bæði liðin töpuðu í gærkvöldi, Þór fyrir ÍA á Akranesi og KA á heimavelli fyrir FH sem var í neðsta sætinu fyrir leikinn. KA og Þór hafa nú bæði 15 stig en FH-ingar skutust upp í 17 með sigri á Greifavellinum.

Liðin sem voru í seilingarfjarlægð frá KA og Þór fyrir gærdaginn nældu flest í stig í gær; Valur, sem hefur verið í basli, vann Breiðablik og komst upp í 5. sæti, Skagamenn fóru upp í 6. sæti og Stjarnan vann Keflavík. Þá gerði ÍBV jafntefli við Víking.

Þess verður að geta að ÍBV og FH eru aðeins tveimur stigum á undan Akureyringum en Stjarnan er nú sex stigum á undan og Keflavík, ÍA og Valur öll sjö stigin fyrir ofan KA og Þór. Öll nótt er sjálfsögðu ekki úti en blóðug botnbaráttan framundan.

Þetta eru leikirnir sem félögin eiga eftir þar til deildinni verður skipt:

19. umferð:

  • Valur - KA
  • Þór - Keflavík

20. umferð:

  • KA - KR
  • Stjarnan - Þór

21. umferð:

  • Fram - KA
  • ÍBV - Þór

22. umferð:

  • KA - Breiðablik
  • Þór - FH

 

Fjallað var ítarlega um leikina á akureyri.net í gærkvöldi. Smellið hér til að lesa:

Freistað með okkar eigin peningum

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
07. ágúst 2026 | kl. 15:00

Hvað gæti ESB gert fyrir Norðurland?

Halldór Jörgen Olesen skrifar
06. ágúst 2026 | kl. 15:00

Ísland og ESB: Horft af brúnni

Þorvaldur Gylfason skrifar
04. ágúst 2026 | kl. 12:30

Hvernig lögum við vanstillt stjórnmál?

Gunnar Már Gunnarsson skrifar
29. júlí 2026 | kl. 11:30

Landbúnaður, fæðuöryggi, byggðamál og ESB

Hólmgeir Karlsson skrifar
27. júlí 2026 | kl. 06:00

Landlægur misskilningur um þjóðaratkvæðagreiðslu

Hjörtur Hjartarson skrifar
23. júlí 2026 | kl. 13:36