Andleysi hjá KA – fallbaráttan harðnar
KA-menn heimsóttu nýliða Keflavíkur í efstu deild karla, Bestu deildinni, í gærkvöld í mikilvægum leik í baráttunni í neðri hluta deildarinnar. Keflvíkingar fóru með auðveldan 3:0 sigur af hólmi, og fengu færi til að skora fleiri mörk, en leikur KA-liðsins hrundi alveg eftir fyrsta markið. Fyrir leikinn voru KA-menn með 15 stig eins og Þór – og FH eina liðið þar fyrir neðan. Keflavík var með 19 stig eins og Valur og ÍA og þar á milli voru Stjarnan með 18 stig og ÍBV með 16. Með þessu tapi sogast KA þar með ennþá dýpra í fallbaráttuna.
Fyrri hálfleikurinn á blautum grasvellinum í Keflavík var býsna fjörugur og KA var heldur sterkara liðið til að byrja með. Lítið gekk þó að skapa færi og flestar aðgerðir runnu út í sandinn þegar nálgaðist vítateig andstæðinganna. Það voru heimamenn sem brutu ísinn á 27. mínútu þegar þeir fóru í hraða sókn, sem virtist vera að renna út í sandinn þegar boltinn barst til Sindra Snæs Magnússonar við vítateigshornið vinstra megin. Sindri Snær lagði boltann með hárnákvæmu skoti upp í markhornið fjær, óverjandi fyrir Ívar Arnbro Þórhallsson í markinu.

Mynd: Víkurfréttir/Hilmar Bragi
Tvö mörk eftir varnarmistök
Við þetta var allur vindur úr KA-liðinu og Keflvíkingar bættu við tveimur mörkum á stuttum tíma eftir mistök í varnarleik KA. Á 32. mínútu splundraði Ígnacio Heras Anglada vörn KA með glæsilegri sendingu úr vörninni, Axel Ingi Jóhannesson fékk boltann á auðum sjó hægra megin og lagði hann fyrir markið þar sem KA-maðurinn fyrrverandi, Dagur Ingi Valsson, var dauðafrír á markteig og átti ekki í erfiðleikum með að skora.
Aðeins fjórum mínútum síðar gerðu heimamenn í raun út um leikinn. Löng sending barst að vítateig KA, þar sem enginn Keflvíkingur var nálægt. Ívar kemur út úr markinu í þeim erindagjörðum að handsama knöttinn en Markús Máni Pétursson virtist ekki hafa áttað sig á því og skallaði knöttinn frá. Skallinn var mjög slakur, þvert yfir vítateiginn þar sem Stefan Alexander Ljubicic þakkaði gott boð og renndi knettinum í markið. Gjöf á silfurfati og sjaldséð mistök hjá Markúsi Mána sem hefur verið einn traustasti leikmaður KA í sumar, þrátt fyrir ungan aldur og litla reynslu í efstu deild.

Sindri Snær Magnússon, fyrirliði Keflvíkinga með boltann í gær. Hann braut ísinn með glæsilegu marki þegar tæpur hálftími var liðinn. KA-maðurinn Hallgrímur Mar Steingrímsson til hægri. Mynd: Víkurfréttir/Hilmar Bragi
Ef til vill hefur Twana Khalid Ahmed dómari fundið til með KA-mönnum því tveimur mínútum síðar braut Markús Máni af sér inni í vítateig og heimamenn áttu sterkt tilkall til vítaspyrnu. Ekkert var þó dæmt og í næstu sókn fékk KA sitt langbesta marktækifæri í leiknum. Hallgrímur Mar Steingrímsson fékk boltann einn á auðum sjó við vinstra markteigshorn eftir sendingu Valdimars Loga gegnum vörnina frá hægri. Lyfti knettinum yfir Ásgeir Orra Magnússon í markinu en líka yfir markið.
KA-liðið aldrei líklegt til að rétta sinn hlut eftir hlé
Hafi stuðningsmenn KA búist við því að liðið kæmi út í seinni hálfleikinn stútfullt af baráttuanda og leikmenn staðráðnir í að selja sig dýrt – þá var mjög langt frá því að sú ósk rættist. Heimamenn fengu gott færi strax í upphafi seinni hálfleiks, Eiður Orri Ragnarsson var kominn einn gegn Ívari, lék framhjá honum en var þá kominn of utarlega, færið nánast vonlaust, og skotið hafnaði í hliðarnetinu. KA-menn voru andlausir og bitlausir og losarabragur á liðinu. Eiður Orri Ragnarsson Keflvíkingur fékk sitt annað gula spjald þegar hálftími var eftir af leiknum og var sendur í bað en það sem eftir lifði leiks var ekki að sjá að heimamenn væru einum færri. Keflvíkingar fengu áfram bestu færin og Ívar bjargaði tvívegis vel maður á mann eftir keflvískar skyndisóknir. Og skömmu fyrir leikslok setti Marin Brigic boltann yfir KA-markið úr góðu færi.

Marin Brigic, fyrir miðri mynd, skýtur yfir KA-markið úr góðu færi þegar skammt lifði leiks. Mynd: Víkurfréttir/Hilmar Bragi
Baráttu- og andleysi KA-liðsins í þessum leik hlýtur að vera áhyggjuefni fyrir KA. Eftir að liðið tapaði sex leikjum í röð vannst loks sigur gegn ÍA 12. júlí og síðan komu jafntefli gegn ÍBV og Þór. Og miðað við hversu stutt er á milli liðanna í neðri hluta deildarinnar ætti það að vera gulrót fyrir leikmenn að leggja allt í sölurnar, halda áfram að hala inn stig og gera atlögu að efri hlutanum. En miðað við arfaslaka frammistöðu liðsins í Keflavík lítur allt út fyrir að liðið verði í harðri baráttu um að forðast fall niður í Lengjudeildina. Spurningin er hvort sú staðreynd dugar til að menn skrúfi hausinn rétt á og leggi sig fram, því ekki vantar góða knattspyrnumenn í liðið.
Þeir Jeppe Pedersen og Birgir Baldvinsson komu inn í byrjunarlið KA eftir leikbann í síðasta leik gegn Þór og þá kom Valdimar Logi Sævarsson einnig inn í byrjunarliðið. Jakob Snær Árnason tók út leikbann og þeir Kári Gautason og Danijel Dejan Djuric settust á varamannabekkinn. Erfitt er að hæla nokkrum leikmanni en Ívar í markinu bjargaði þó því að Keflavík skoraði ekki fleiri mörk. Varnarmennirnir áttu í stökustu vandræðum með spræka kantmenn Keflvíkinga og KA-liðinu gekk afleitlega að byggja upp sóknir. Ákvarðanataka á síðasta þriðjungi vallarins var slök og ómarkviss og lykilmenn liðsins voru sem skugginn af sjálfum sér.
Næsti leikur liðsins er á sunnudaginn gegn botnliði FH, sem hefur ekki tapað í sjö leikjum í röð, og KA-menn þurfa að sýna meiri gæði en gegn Keflavík eigi ekki illa að fara í þeim leik líka.

Ívar Arnbro Þórhallsson í marki KA bjargaði tvívegis vel í seinni hálfleik, þegar Keflvíkingar voru komnir í dauðafæri. Hér ver hann frá Marin Mudrazija seint í leiknum. Mynd: Víkurfréttir/Hilmar Bragi
KA: Ívar Arnbro Þórhallsson – Guðjón Ernir Hrafnkelsson, Hans Viktor Guðmundsson, Markús Máni Pétursson, Birgir Baldvinsson – André Römer (Snorri Kristinsson 81.), Jeppe Pedersen (Mikael Breki Þórðarson 46.) – Valdimar Logi Sævarsson (Diego Montiel 66.), Hallgrímur Mar Steingrímsson, Adam Ægir Pálsson (Samuel Kroon 66.) – Jakob Héðinn Róbertsson (Danijel Dejan Djuric 81.).
17 umferðir eru að baki og því fimm leikir eftir þar til deildinni verður skipt í tvennt. Sex efstu halda áfram baráttu um Íslandsmeistaraititilinn en sex næstu leika innbyrðis. Tvö neðstu að þeirri viðbót lokinni falla.
KA hefur unnið fjóra leiki í Bestu deildinni í sumar, gert þrjú jafntefli en tapað tíu leikjum.
KA-menn hafa fagnað sigri á Eyjamönnum og Akurnesingum á heimavelli og Þórsurum og FH-ingum á útivelli. ÍA er nú í 6. sæti deildarinnar, ÍBV í 9. sæti, Þór í 11. sæti og FH í 12. og neðsta sæti.
KA hefur gert jafntefli á heimavelli við ÍA, ÍBV og Þór.
KA hefur tapað á heimavelli fyrir Stjörnunni, Víkingi, Keflavík, Val og Fram og á útivelli fyrir KR, Stjörnunni, Breiðabliki, Víkingi og Keflavík.
Næsti leikur er á heimavelli gegn botnliði FH en fjórir síðustu leikirnir fyrir skiptingu eru gegn liðunum í 5., 3., 2. og 4. sæti.
- Sunnudag 9. ágúst 18.00
KA - FH - Sunnudag 16. ágúst 19:15
Valur - KA - Sunnudag 23. ágúst 17:00
KA - KR - Sunnudag 30. ágúst 17:00
Fram - KA - Sunnudag 6. september 14:00
KA - Breiðablik
Hvernig lögum við vanstillt stjórnmál?
Landbúnaður, fæðuöryggi, byggðamál og ESB
Landlægur misskilningur um þjóðaratkvæðagreiðslu
Svæðisborgin Akureyri