Þór/KA fær Fram í heimsókn í kvöld
Þór/KA stendur í gríðarlega spennandi og jafnri baráttu í neðri hluta Bestu deildar kvenna, rétt eins og Þór og KA í Bestu deild karla. Þór/KA tekur á móti Fram í kvöld.
Enn er baráttan í neðri hluta Bestu deildar kvenna í knattspyrnu jöfn og spennandi. Þór/KA er þar í miðri hringiðunni, en næstu leikir liðsins eru gegn liðum á svipuðum slóðum. Að loknum 13 umferðum munar aðeins sex stigum á liðunum í 5. og 10. sætinu. Grindavík/Njarðvík er með 16 stig í 5. sætinu, Fram með sama stigafjölda í því sjötta, þá Þróttur með 14 stig, Þór/KA í 8. sætinu með 12 stig, Víkingur með 11 og Valur í botnsætinu með 10 stig.
- Besta deild kvenna í knattspyrnu, 15. umferð
VÍS-völlurinn (gervigras á Ásnum) kl. 18
Þór/KA - Fram
Þór/KA mátti þola 2-0 tap á útivelli gegn Breiðabliki í síðasta leik, en Fram vann sama dag 4-1 sigur á Val. Fyrri leik liðanna lauk með 3-2 sigri Fram í Úlfarsárdalnum í maí.
Ísland og ESB: Horft af brúnni
Hvernig lögum við vanstillt stjórnmál?
Landbúnaður, fæðuöryggi, byggðamál og ESB
Landlægur misskilningur um þjóðaratkvæðagreiðslu