Fara í efni
Umræðan

Fjórði heimasigur Þórs/KA í röð

Þór/KA lagði Fram að velli 2:0 í 14. umferð efstu deildar kvenna í knattspyrnu, Bestu deildinni, í kvöld. Leikið var á gervigrasvelli Þórs á Ásnum, VÍS vellinum, og þetta var fjórði heimaleikurinn í röð sem Þór/KA vinnur. Liðið er nú aðeins einu stigi frá Fram í 6. sæti deildarinnar, sem er síðasta sætið í efri hluta deildarinnar áður en henni verður skipt upp.

Bæði liðin hafa rétt verulega úr kútnum eftir erfiða byrjun í deildinni. Fyrir þennan leik hafði Fram t.d. unnið fjóra leiki í röð og verið á mikilli siglingu. Þór/KA hefur sömuleiðis halað inn stig að undanförnu, unnið sig upp úr botnsætinu, og leikur liðsins hefur batnað til mikilla muna frá fyrstu umferðum mótsins.

Fyrir leik afhenti Birgir Örn Reynisson, varaformaður stjórnar Þórs/KA, Örnu Sif Ásgrímsdóttur treyju með tölunni 300, en Arna Sif spilaði 300. leik sinn fyrir Þór/KA í sigrinum á Þrótti 22. júní, samanlagt í deild, bikar, deildabikar, meistarakeppni og Evrópukeppnum. Mynd: Ármann Hinrik.

Fyrri hálfleikurinn í kvöld einkenndist af mikilli baráttu og hvorugt liðið náði afgerandi tökum á leiknum. Markverðir liðanna, Alessandra Augur hjá Þór/KA og Ashley Brown Orkus hjá Fram, þurftu hvor um sig að verja frekar auðveld skot sem komu utan vítateigs, alveg þangað til á lokamínútu hálfleiksins. Þá var klafs í vítateig Þórs/KA, boltinn barst til Söru Svanhildar Jóhannsdóttur við vítateigslínuna og Allie í markinu þurfti að hafa fyrir því að bjarga skoti hennar í horn. Í aðdragandanum vildu Framarar meina að boltinn hefði farið í hönd leikmanns Þórs/KA inni í vítateig, og höfðu eitthvað til síns máls, en Sveinn Arnarsson dómari gaf lítið fyrir það.

Þór/KA með yfirhöndina í seinni hálfleik

Seinni hálfleikur var öllu líflegri og Þór/KA náði forystunni á 53. mínútu. Þór/KA fékk aukaspyrnu rétt innan miðlínu og Hildur Anna Birgisdóttir sendi langan bolta inn í vítateig Fram. Ashley markvörður kom út og hugðist grípa knöttinn en náði ekki taki á honum í baráttu við Örnu Sif Ásgrímsdóttur. Karen Hulda Hrafnsdóttir var ákveðnust allra, réðst að boltanum og náði að pota honum í markið framhjá varnarmönnum Fram. Frábær samvinna hjá miðvörðum Þórs/KA og fyrsta mark hinnar 17 ára Karenar í efstu deild. Ashley vildi meina að brotið hafi verið á sér en Sveinn dómari lét sér fátt um finnast sem fyrr.

  • 1-0 - Karen Hulda Hrafnsdóttir á 53. mínútu
    Fyrra markið séð í gegnum linsuna hjá Ármanni Hinrik. Hildur Anna Birgisdóttir tók aukaspyrnu á vinstri kantinum, sendi háan bolta inn í teiginn þar sem Arna Sif Ásgrímsdóttir og Ashley Brown Orkus, markvörður Fram, stukku upp í boltann. Að lokum barst boltinn til Karenar Huldu Hrafnsdóttur sem kom honum í markið. 

Framarar virtust slegnir út af laginu við markið og Þór/KA gekk á lagið. Baráttan var til fyrirmyndar og leikur liðsins hefur vaxið mjög undanfarnar vikur. Betur gengur að halda boltanum innan liðsins en í framan af mótinu, sjálfstraust leikmanna hefur vaxið og skyndisóknirnar eru hraðar og vel útfærðar. Erin Flurey var einmitt í góðu færi í miðjum vítateignum á 62. mínútu en þrumaði boltanum yfir markið. Stuttu síðar skallaði María Dögg Jóhannesdóttir boltann í markið af stuttu færi eftir vel útfærða hornspyrnu en aðstoðardómarinn flaggaði rangstöðu. Leit út fyrir að vera tæpt.

Amalía Árnadóttir komst í gott færi á 69. mínútu eftir enn eina snögga sóknina en skotið fór beint á Ashley í markinu. Þór/KA var áfram með tök á leiknum og Framarar virtust aldrei líklegir til að jafna. Erin Flurey gulltryggði síðan sigurinn á 84. mínútu eftir frábæra skyndisókn. Framarar tóku hornspyrnu, hún var illa útfærð og boltinn fór beint til Erin Flurey við vítateig Þórs/KA. Hún kom boltanum á Hildi Önnu sem geystist upp vinstri kantinn og sendi boltann á hárréttum tíma á Margréti Árnadóttur. Margrét renndi honum á Erin, sem skyndilega var komin fremst, fíflaði varnarmenn Fram upp úr skónum og var komin ein á auðan sjó í vítateignum. Varla voru nema 20 sekúndur liðnar frá því Fram tók hornið þangað til Erin þrumaði boltanum í markið framhjá Ashley. Stórglæsileg sókn og verðskuldaður sigur í höfn.

  • 2-0 - Erin Flurey á 84. mínútu
    Seinna markið séð í gegnum linsuna hjá Ármanni Hinrik. Stutt hornspyrna Fram endaði með því að Erin Flurey fékk boltann rétt utan vítateigs Þórs/KA, kom honum á vinstri kantinn þar sem Hildur Anna Birgisdóttir fór áfram á sprettinum, hún kom boltanum á Margréti Árnadóttur inni á miðjunni, Margrét sendi áfram upp vinstra megin og þar var Erin skyndilega komin í fremstu víglínuna. Hún lék laglega á varnarmenn Fram og kom boltanum í netið.

Mikil barátta um að ná sæti í efri hlutanum

Afar mikilvægur sigur hjá Þór/KA og liðið hefur svo sannarlega svarað fyrir slaka frammistöðu í upphafi móts með mjög sannfærandi hætti undanfarið. Til marks um það þá fékk liðið á sig 19 mörk í fyrstu 7 umferðunum en í síðustu 7 umferðum hefur liðið bara fengið á sig 6 mörk. Þótt enn sé stutt á milli liðanna í neðri hluta deildarinnar þá hefur bilið upp í efri hlutann líka minnkað mikið. Eftir tvískiptingu deildarinnar munu sex efstu liðin leika í efri hlutanum en fjögur neðstu í þeim neðri. Eftir þennan sigur er Þór/KA komið upp í 7. sætið og Fram er aðeins einu stigi á undan í 6. sætinu. Enn eru fjórar umferðir eftir þangað til deildinni verður skipt, þannig að allt getur gerst.

Næsti leikur Þórs/KA er á útivelli gegn Víkingi næstkomandi föstudag. Síðasti tapleikur Þórs/KA á heimavelli var einmitt 6:4 tap gegn Víkingi í lok maí. Síðan þá hefur gengi liðanna verið ólíkt – Þór/KA klifrað upp töfluna en Víkingur sigið sífellt neðar og situr nú í botnsæti deildarinnar.

Þór/KA: Alessandra Dorothy Augur - Angela Mary Helgadóttir, Karen Hulda Hrafnsdóttir, Arna Sif Ásgrímsdóttir, María Dögg Jóhannesdóttir - Margrét Árnadóttir, Elizabeth Moore, – Hulda Ósk Jónsdóttir (Birgitta Rún Finnbogadóttir 72.), Hildur Anna Birgisdóttir, Amalía Árnadóttir (Agnes Birta Stefánsdóttir 78.)  - Erin Flurey (Emelía Blöndal Ásgeirsdóttir 92.).

Leikskýrslan á vef KSÍ

Staðan í deildinni

Freistað með okkar eigin peningum

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
07. ágúst 2026 | kl. 15:00

Hvað gæti ESB gert fyrir Norðurland?

Halldór Jörgen Olesen skrifar
06. ágúst 2026 | kl. 15:00

Ísland og ESB: Horft af brúnni

Þorvaldur Gylfason skrifar
04. ágúst 2026 | kl. 12:30

Hvernig lögum við vanstillt stjórnmál?

Gunnar Már Gunnarsson skrifar
29. júlí 2026 | kl. 11:30

Landbúnaður, fæðuöryggi, byggðamál og ESB

Hólmgeir Karlsson skrifar
27. júlí 2026 | kl. 06:00

Landlægur misskilningur um þjóðaratkvæðagreiðslu

Hjörtur Hjartarson skrifar
23. júlí 2026 | kl. 13:36