Fara í efni
Íþróttir

Slæmt tap hjá KA og enn syrtir í álinn

Getur Hallgrímur Jónasson togað KA aftur úr fallsæti? Hér hjálpar hann Adam Ægi Pálssyni á fætur eftir tapið gegn FH í kvöld, sem skilaði FH upp fyrir Akureyrarliðin. Mynd: Ármann Hinrik.

Ófarir KA í efstu deild karla í knattspyrnu, Bestu deildinni, halda áfram en í kvöld beið liðið lægri hlut gegn neðsta liði deildarinnar á heimavelli. FH-ingar úr Hafnarfirði voru í heimsókn og óhætt er að fullyrða að mikilvægi þessa leiks fyrir bæði lið var gríðarlegt. Gestirnir skoruðu eina markið í leiknum og stukku þar með upp fyrir KA og Þór, sem sitja nú í botnsætum deildarinnar.

Hvorugt liðið hafði í raun efni á að tapa þessum leik og ef til vill setti sú staðreynd mark sitt á leikinn, sem var afskaplega lítið fyrir augað. Hvorugt liðið náði tökum á leiknum og gæðaleysið í sóknartilburðunum var átakanlegt. Markalaust jafntefli hefðu verið sanngjörnustu úrslitin en samt verðskuldaði frammistaða hvorugs liðsins í raun stig úr leiknum. Ef blaðamaður hefði verið með blýant og blað til að skrá hjá sér atburði leiksins hefði verið alger óþarfi að seilast eftir yddaranum.

Bragðlaus fyrri hálfleikur

Adam Ægir Pálsson lék lengst af í fremstu víglínu KA og hann átti einu færi liðsins í fyrri hálfleik. Samt varla hægt að kalla það færi – í fyrra tilfellinu skaut hann framhjá marki FH úr vítateignum og síðan átti hann lausan skalla að marki sem var hættulaus. KA-menn voru frískari í upphafi leiks en sóknartilburðirnir voru harla bitlausir allan leikinn. Besta færi FH fyrir hlé kom undir lok hálfleiksins þegar Ívar Arnbro Þórhallsson varði skot Kjartans Kára Halldórssonar úr aukaspyrnu. 

Atgangur í teig KA. Ívar Arnbro Þórhallsson slær boltann frá. Mynd: Ármann Hinrik.

Eftir hlé hélt sama miðjumoðið áfram og það gerðist bókstaflega ekkert frásagnarvert fyrr en á 69. mínútu þegar varamaðurinn og nýliðinn í FH-liðinu, Erlingur Agnarsson, átti gott skot utarlega úr vítateignum sem Ívar varði vel í horn. Upp úr horninu kom markið, vel útfært beint af æfingasvæðinu. Kjartan Kári Halldórsson tók hornið og Ísak Óli Ólafsson kom á nærstöngina og flikkaði boltanum aftur fyrir sig með höfðinu og í netið.

  • 0-1 - Ísak Óli Ólafsson á 70. mínútu
    Kjartan Kári Halldórsson tók hornspyrnu á nærstöngina þar sem Ísak Óli var mættur og skallaði boltann aftur fyrir sig og í netið. FH-ingar fögnuðu markinu að sjálfsögðu innilega enda dugði það á endanum til að taka öll stigin sem í boði voru. Myndir Ármanns Hinriks sýna boltann í netinu og fögnuð FH-inga.

Á 83. mínútu fékk Jakob Héðinn Róbertsson gott færi fyrir KA. Aðdragandinn að því var ekki gott spil eða frábær sending, heldur spyrnti einn FH-ingurinn knettinum í KA-mann og þaðan hrökk boltinn inn fyrir vörnina. Jakob Héðinn var kominn einn gegn Jökli Andréssyni í markinu sem gerði sig breiðan og varði í horn.

Á lokasekúndum uppbótartíma sendi Hallgrímur Mar Steingrímsson boltann inn í teig FH-inga úr aukaspyrnu og eftir klafs hrökk boltinn fyrir fætur fyrirliðans Hans Viktors Guðmundssonar sem var í fínu markfæri. Hann hitti boltann hins vegar afskaplega illa og knötturinn fór aldrei nálægt markinu. Síðasta snerting leiksins og líklega býsna táknræn fyrir gæðin sem liðunum tókst alls ekki að sýna í kvöld. 

KA komið í alvöru vandræði

Eins og áður sagði þá var þetta baráttuleikur tveggja slakra liða sem áttu lítið skilið úr þessum leik og hafi KA-menn ekki verið farnir að hafa áhyggjur af frammistöðu liðsins og stöðu þess í deildinni, þá hljóta þær áhyggjur að gera vart við sig eftir tap á heimavelli gegn neðsta liði deildarinnar. Enda eru stuðningsmenn liðsins farnir að láta í sér heyra á samfélagsmiðlum og kalla eftir breytingum. Vandamálið er ekki bara það að úrslitin undanfarnar vikur og mánuði hafi verið KA óhagstæð heldur er frammistaða liðsins búin að vera afskaplega flöt og ósannfærandi. Ekki virðast mörg teikn á lofti þess efnis að liðið sé að ná sér á strik, þrátt fyrir að hafa bætt við sig mannskap. Sóknarleikurinn í kvöld var fullkomlega bitlaus og andleysið allsráðandi. Það er í það minnsta alveg ljóst að ef ekki á illa að fara í haust þarf að hrista verulega upp í hlutunum.

FH-ingar eru óbrotnir enda fengu þeir þrjú stig út úr leiknum og hífðu sig úr fallsæti. FH-ingurinn Oliver Stefánsson hughreystir Adam Ægi Pálsson að leik loknum. Hafnfirðingar hafa ekki tapað í síðustu níu leikjum, unnið þrjá þeirra og gert sex jafntefli. Mynd: Ármann Hinrik.

Næsti leikur KA er útileikur á sunnudaginn gegn Val. Þar mætast lið sem bæði hafa verið í vandræðum undanfarið og í þeim leik kemur ef til vill í ljós hvort þeirra verður búið að ná vopnum sínum.

KA: Ívar Arnbro Þórhallsson – Guðjón Ernir Hrafnkelsson, Hans Viktor Guðmundsson, Birgir Baldvinsson (Kári Gautason 52.), Samuel Kroon (Snorri Kristinsson 74.) – Valdimar Logi Sævarsson (Danijel Dejan Djuric 61.), Jakob Snær Árnason (Jeppe Pedersen 74.), Hallgrímur Mar Steingrímsson, Jakob Héðinn Róbertsson – Adam Ægir Pálsson.

Leikskýrslan á vef KSÍ

Staðan í deildinni

18 umferðir eru að baki og því fjórir leikir eftir þar til deildinni verður skipt í tvennt. Sex efstu halda áfram baráttu um Íslandsmeistaraititilinn en sex næstu leika innbyrðis. Tvö neðstu að þeirri viðbót lokinni falla.

KA hefur unnið fjóra leiki í Bestu deildinni í sumar, gert þrjú jafntefli en tapað ellefu leikjum.

KA-menn hafa fagnað sigri á Eyjamönnum og Akurnesingum á heimavelli og Þórsurum og FH-ingum á útivelli. ÍA er nú í 6. sæti deildarinnar, ÍBV í 9. sæti, FH í 10. sæti og Þór í 12. og neðsta sæti.

KA hefur gert jafntefli á heimavelli við ÍA, ÍBV og Þór.

KA hefur tapað á heimavelli fyrir Stjörnunni, Víkingi, Keflavík, Val, Fram og FH og á útivelli fyrir KR, Stjörnunni, Breiðabliki, Víkingi og Keflavík.

Næsti leikur er á útivelli gegn Val en þrír síðustu leikirnir fyrir skiptingu eru gegn liðunum í 3., 2. og 4. sæti.

  • Mánudag 17. ágúst 18:00
    Valur - KA
  • Sunnudag 23. ágúst 17:00
    KA - KR
  • Sunnudag 30. ágúst 17:00
    Fram - KA
  • Sunnudag 6. september 14:00
    KA - Breiðablik