Um 700 keppendur á N1 móti stelpna
N1 mót stelpna í fótbolta hófst á KA-svæðinu í dag og stendur til sunnudags. KA og N1 hafa í áratugi haldið mót fyrir 5. flokk stráka en bættu við stelpumóti í fyrra. Mótið er því haldið í annað sinn nú og „markar áframhaldandi uppbyggingu á öflugum vettvangi fyrir ungar knattspyrnustúlkur víðs vegar að af landinu,“ segir í tilkynningu frá mótshöldurum.
Í ár taka 108 lið þátt í mótinu með um 700 keppendum. „Líkt og á N1 mótinu fyrir strákana snýst mótið ekki aðeins um leikina sjálfa heldur einnig um samveruna, ferðalagið norður, ný vináttubönd og þá upplifun sem fylgir því að taka þátt í stóru knattspyrnumóti,“ segir í tilkynningunni. „N1 hefur um áratugaskeið verið öflugur bakhjarl íþrótta- og æskulýðsstarfs á Íslandi. Með N1 stelpumótinu vill fyrirtækið leggja sitt af mörkum til að skapa stúlkum sambærilegan vettvang og drengir hafa notið í áratugi.“
Reikna með nærri 3.000 gestum
„Við erum afar ánægð með að sjá N1 stelpumótið vaxa og þróast. Okkar markmið er að styðja við öflugt íþróttastarf um allt land og skapa börnum tækifæri til að njóta íþróttanna, eignast vini og safna góðum minningum. Við hlökkum til að taka á móti öllum liðunum á Akureyri núna um helgina,” segir Magnús Hafliðason, forstjóri N1.
Reiknað er með að fjöldi fólks leggi leið sína til Akureyrar líkt og á N1 mótinu í júlí. Í tilkynningunni segir að gert sé ráð fyrir nálægt 3000 gestum í heildina á svæðinu. Fjölskyldur keppenda komi víðs vegar að af landinu og nýti gjarnan tækifærið til að dvelja á Akureyri og kynnast bænum og Norðurlandi.
„Íþróttamót af þessari stærð verða ekki til af sjálfu sér. Að baki standa KA, fjöldi sjálfboðaliða, foreldra, þjálfara og starfsfólks sem leggja mikla vinnu í að skapa þátttakendum góða upplifun.“

Vegna mótsins verður óhjákvæmilega nokkur röskun á umferð ökutækja um bæinn. Dalsbraut verður lokuð í aðra áttina frá gatnamótum við Þingvallastræti að hringtorgi við Skógarlund til að nýta megi hluta götunnar sem bílastæði þá daga sem mótið stendur, frá kl. 10 í morgun þar til kl. 16 sunnudaginn 9. ágúst.
Í tilkynningu á vef Akureyjarbæjarin er minnt á að frítt er í strætó á Akureyri.
Heimasíða mótsins: www.n1motid.is/stelpur
Hvað gæti ESB gert fyrir Norðurland?
Ísland og ESB: Horft af brúnni
Hvernig lögum við vanstillt stjórnmál?
Landbúnaður, fæðuöryggi, byggðamál og ESB