Fara í efni
Pistlar

Tvær af þotunum átta farnar til Keflavíkur

Örtröðin á Akureyrarflugvelli vakti mikla athygli bæjarbúa og ekki að undra. Fjöldi bíla var í grennd við flugvöllinn um tíma. Mynd: Skapti Hallgrímsson.

Flugvélar geta nú lent á Keflavíkurflugvelli á ný en eins og fram kom fyrr í dag þurftu margar þotur frá að hverfa þegar veður versnaði snögglega. Alls lentu átta þotur Icelandair á Akureyrarflugvelli síðdegis en á sjötta tímanum voru þær farnar að búa sig til brottfarar, en reyndar eru aðeins tvær farnar.

Fimm vélar Icelandair lentu á Reykjavíkurflugvelli vegna veðursins og átta á Akureyri. Þá fóru tvær vélar til Egilsstaða, önnur þeirra frá Icelandair. Aðstæðurnar höfðu einnig áhrif á vélar ýmissa annarra flugfélaga.

Varaflugvellir mikilvægir

Eins og fram kom í frétt akureyri.net fyrr í dag undirstrikaði Guðni Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, mikilvægi varaflugvalla landsins þegar svona aðstæður skapast. Veðrið í Keflavík versnaði mjög snögglega og t.a.m. fór hitastigið úr fimm gráðu hita niður í eins stigs frost á aðeins 40 mínútum, samhliða snjókomu og vindhviðum, með þeim afleiðingum að ekki var hægt að lenda.

Hús dagsins: Gránufélagsgata 18

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
26. apríl 2026 | kl. 14:00

Súrmatur á Hofi

Jóhann Árelíuz skrifar
26. apríl 2026 | kl. 11:30

Um trjárækt árið 1916

Sigurður Arnarson skrifar
22. apríl 2026 | kl. 12:45

„Næring“ – meira en það sem er á disknum

Hrafnhildur Reykjalín skrifar
21. apríl 2026 | kl. 08:00

Laxness í norska Amaróhúsinu

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
17. apríl 2026 | kl. 12:00

Ólíkt undirlag, sama útkoma – sigur Þórs

Orri Páll Ormarsson skrifar
17. apríl 2026 | kl. 09:30