Fara í efni
Pistlar

600 manns bíða enn – Flogið upp úr miðnætti

Önnur vélanna sem fór frá Akureyri undir kvöld brunar eftir flugbrautinni en sú til vinstri fór ekki fyrr en síðar. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Fjórar af átta þotum Icelandair sem þurftu að lenda á Akureyrarflugvelli í dag, þegar veður- og brautarskilyrði í Keflavík versnuðu snögglega, eru ennþá á Akureyri núna á tólfta tímanum. Ástæðan er sú að komið var að hvíldartíma áhafna og því ekki hægt að fljúga vélunum suður.

Skv. upplýsingum akureyri.net kom vél frá Icelandair norður með nýjar áhafnir upp úr klukkan ellefu í kvöld og stefnt er að því að vélarnar fari til Keflavíkur ein af annarri um eða upp úr miðnætti. 

Farþegar fengu að fara frá borði

Um 600 farþegar eru um borð í vélunum fjórum og hafa þeir fengið að fara inn í flugstöðina á Akureyri en mega líka vera um kyrrt í vélunum. Samkvæmt upplýsingum frá Isavia mega að hámarki vera 450 manns inni í nýju flugstöðvarbyggingunni á Akureyri í einu, að meðtöldu starfsfólki, þannig að líklega hafa farþegar þurft að skiptast á um að vera inni.

Fréttir akureyri.net frá því fyrr í dag:

Hús dagsins: Gránufélagsgata 18

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
26. apríl 2026 | kl. 14:00

Súrmatur á Hofi

Jóhann Árelíuz skrifar
26. apríl 2026 | kl. 11:30

Um trjárækt árið 1916

Sigurður Arnarson skrifar
22. apríl 2026 | kl. 12:45

„Næring“ – meira en það sem er á disknum

Hrafnhildur Reykjalín skrifar
21. apríl 2026 | kl. 08:00

Laxness í norska Amaróhúsinu

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
17. apríl 2026 | kl. 12:00

Ólíkt undirlag, sama útkoma – sigur Þórs

Orri Páll Ormarsson skrifar
17. apríl 2026 | kl. 09:30