Fara í efni
Fréttir

Átta Icelandair þotur á Akureyrarflugvelli

Þröng á þingi! Þarna sést í fimm af þeim átta þotum sem eru á Akureyrarflugvelli í augnablikinu. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Síðdegis í dag versnaði veður skyndilega á suðvesturhorni landsins og talsvert rask er á millilandaflugi, sem hefur áhrif á minnst 23 flugvélar. Alls hafa þrettán þotur Icelandair á leið til landsins þurft að lenda á varaflugvöllum til að bíða af sér veðrið, þar af átta á Akureyrarflugvelli. Enn fleiri þotur eru á leið til landsins og ekki er ljóst hvort þær geti lent í Keflavík.

Guðjón Helgason, upplýsingafulltrúi Isavia, segir í samtali við fréttastofu RUV að gert hafi veðurhvell með þungum, blautum snjó, hvassviðri og lélegu skyggni. Af þessum sökum hafi ekki verið hægt að lenda á Keflavíkurflugvelli. Unnið er að því að moka flugbrautir.

Á þessu korti sjást nokkrar af þotum Icelandair búa sig undir að lenda á Akureyrarflugvelli. Skjáskot/Flightradar24.com kl. 16:20.

Guðni Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, segir í samtali við mbl.is að þrettán vélar félagsins hafi tekið ákvörðun um að lenda á varaflugvelli. Allar vélarnar koma frá Evrópu til lendingar í Keflavík. „Fimm vélar eru ýmist lentar eða á leiðinni til Reykjavíkur þar sem fimm eru lentar eða munu lenda, sjö á Akureyri og ein á Egilsstöðum,“ segir Guðni við mbl.is en raunin varð sú að átta þotur Icelandair lentu á Akureyrarflugvelli á innan við klukkutíma, auk einnar vélar úr innanlandsflugi.

Undirstrikar mikilvægi varaflugvalla

Guðni undirstrikar mikilvægi varaflugvalla í samtali við Austurfrétt: „Að þetta komi akkúrat á þessum tíma sýnir og sannar mikilvægi þess að hafa góða varaflugvelli með plássi fyrir þennan fjölda sem er að koma til landsins á þessum tíma,“ segir Guðni.

Að sögn Guðna eru fleiri vélar flugfélagsins á leið til landsins eða í biðflugi sem ekki hafa tekið ákvörðun um að lenda í Keflavík. Auk véla Icelandair hafa aðstæðurnar einnig áhrif á þotur frá öðrum flugfélögum og t.d. er vitað að ein vél á vegum easyJet sneri aftur til Bretlands, eftir því sem Austurfrétt greinir frá.