Fara í efni
Pistlar

Flug til Manchester fært á föstudaga

Mynd: Þórhallur Jónsson

Flugfélagið easyJet mun fljúga á milli Akureyrar og Manchester á föstudögum og mánudögum næsta vetur en hingað til hefur verið flogið á laugardögum og þriðjudögum. Þá mun flugáætlun til Manchester næsta vetur hefjast 26. október, þremur vikum fyrr en áætlað var.

Hjalti Páll Þórarinsson, verkefnastjóri Flugklasans Air 66N, segir þessar breytingar mikið fagnaðarefni: „Þessar breytingar eru afrakstur þess frábæra samstarfs sem við höfum átt við easyJet undanfarin misseri. Við höfum átt góð samtöl við easyJet síðan í haust um þessa tilfærslu á dögum fyrir Manchesterflugið. Við erum einnig stöðugt að ýta á lengri flugtímabil og það er að skila sér líka,“ segir Hjalti á vef Markaðsstofu Norðurlands.

Þar segir að breytingin til mánudaga og föstudaga sé líkleg til að hvetja fleiri Breta á upptökusvæði Manchesterflugvallar til að fljúga til Akureyrar sem efli ferðaþjónustu á Norðurlandi. „Þessi breyting er líka hentug fyrir heimafólk á Norðurlandi, sem hefur nú fleiri ferðadaga til að velja úr þegar skipuleggja á utanlandsferð og mun auðveldara verður fyrir fótboltaáhugafólk að skreppa á leik í Manchester eða Liverpool.“

Flugferðirnar eru nú þegar komnar í sölu og hægt er að bóka flug á heimasíðu easyJet www.easyJet.com

Á vef easyJet má sjá að brottfarartímar verða sem hér segir:
 

Föstudagar:

  • Frá Akureyri kl. 9:40lent í Manchester 12:15 
  • Frá Manchester 6:00lent á Akureyri 8:50

Mánudagar:

  • Frá Manchester 6:35lent á Akureyri 9:25
  • Frá Akureyri 10:15 lent í Manchester 12:50

Hafþyrnir - Hinn þyrnótti hestaljómi

Sigurður Arnarson skrifar
15. júlí 2026 | kl. 11:30

Hús dagsins: Sigtún; eldra íbúðarhús

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
14. júlí 2026 | kl. 09:00

Þarf sumarið að vera fullkomið?

Hrafnhildur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar
14. júlí 2026 | kl. 06:00

Er hægt að spila fótbolta svona?

Orri Páll Ormarsson skrifar
10. júlí 2026 | kl. 11:00

Vínviður Vínlands hins góða

Sigurður Arnarson skrifar
08. júlí 2026 | kl. 10:00

Kreppuáll, fuglalíf og ástarglóð

Jóhann Árelíuz skrifar
05. júlí 2026 | kl. 06:00