Fara í efni
Pistlar

Þórsarar og HK-ingar eigast við í Kórnum

Daninn Christian „Greko“ Jakobsen er orðinn löglegur með Þór og verður í leikmannahópnum í kvöld. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Þór sækir HK heim í Kórinn í kvöld þegar fram fara fimm leikir af sex í 13. umferð Lengjudeildar karla, næst efstu deildar Íslandsmótsins í knattspyrnu Þór er í fimmta sæti deildarinnar með 20 stig úr 12 leikjum en HK er í þriðja sæti með 24 stig, einnig eftir 12 leiki.

  • Lengjudeild karla í knattspyrnu
    Kórinn kl. 18
    HK - Þór

Þór og HK mættust í fyrstu 1. umferðinnar deildarinnar í Boganum í byrjun maí og gerðu þá 1:1 jafntefli í skemmtilegum leik. Gestirnir komust yfir snemma leiks, Ibrahima Balde jafnaði með síðustu spyrnu fyrri hálfleiks og þrátt fyrir töluverða yfirburði í seinni hálfleik náðu Þórsarar ekki að knýja fram sigur.

HK vann toppslag gegn ÍR í síðustu umferð, 2:1, en Þórsarar unnu botnlið Leiknis í Boganum, 2:0.

Leikir kvöldsins:

  • HK - Þór
  • Leiknir R. - Þróttur R.
  • Keflavík - Fjölnir
  • Fylkir - Njarðvík
  • Grindavík - Selfoss

Á morgun:

  • Völsungur - ÍR

ÍR er efst í deildinni með 25 stig, Njarðvík og HK með 24 og Þróttur 21. Með sigri í kvöld færðu Njarðvík og HK því á toppinn, amk þar til á morgun, en vinni Þór í Kópavogi í kvöld gæti liðið farið upp í fjórða sæti. Það fer þó auðvitað eftir því hvernig leikur Leiknis og Þróttar fer.

Staðan í deildinni

Krísuvík

Kristín Aðalsteinsdóttir skrifar
18. júlí 2025 | kl. 06:00

Trjávernd

Sigurður Arnarson skrifar
16. júlí 2025 | kl. 10:30

Hvernig væri ásýnd Akureyrar án stóru trjánna?

Rakel Hinriksdóttir skrifar
14. júlí 2025 | kl. 16:30

Ólæst

Sigmundur Ernir Rúnarsson skrifar
14. júlí 2025 | kl. 11:30

Útí dokk

Jóhann Árelíuz skrifar
13. júlí 2025 | kl. 06:00

Pabbi minn, hvers vegna keyptirðu leigubíl?

Orri Páll Ormarsson skrifar
11. júlí 2025 | kl. 13:00