Þórsarar gerðu fimm mörk og héldu hreinu
Elvar kominn aftur í Þór
Vinstri bakvörðurinn Elvar Baldvinsson er kominn í herbúðir Þórs á ný og var í byrjunarliðinu í gær. Óhætt er að segja að hann hafi farið vel af stað því Elvar átti sendingu fyrir markið í tveimur fyrstu mörkunum.
Elvar er Húsvíkingur sem lék Þór frá 2020 til 2022 . Eftir að hann tók þátt í 21 leik í Lengjudeildinni með Þór sumarið 2022 gekk Elvar til liðs við Vestra, var í liðinu þegar félagið fór upp úr Lengjudeildinni 2023 og spilaði 19 leiki í Bestu deildinni 2024.
„Síðasta sumar lék Elvar 19 leiki með Völsungi í Lengjudeildinni. Elvar er fæddur árið 1997 og hefur leikið 249 leiki í deild og bikar í meistaraflokki með Völsungi, Þór og Vestra og skorað í þeim 35 mörk,“ segir í tilkynningu frá Þór.
Síðasti leikur Þórsara í riðlinum verður á heimavelli þriðjudaginn 10. mars þegar Valsmenn kom í heimsókn.
Við getum gert „allt“ … en ekki „allt á sama tíma“
Epískar hörmungar í Freyvangi!
Erlingur fær ekki endurhæfingu
Ferðin austur