Fara í efni
Pistlar

Hallgrímur og Hans léku gegn Mexíkó

Hallgrímur Mar Steingrímsson kom inn á í sínum fyrsta landsleik. Mynd: Knattspyrnusamband Íslands.

Ísland mætti Mexíkó í vináttulandsleik í knattspyrnu karla í Mexíkó í nótt. Heimamenn voru talsvert sterkari aðilinn í leiknum og unnu öruggan 4:0 sigur frammi fyrir um 30 þúsund áhorfendum. KA-mennirnir Hallgrímur Mar Steingrímsson og Hans Viktor Guðmundsson komu báðir inn á sem varamenn í leiknum og léku síðasta hálftímann í sínum fyrsta landsleik.

Þar sem leikurinn var leikinn utan hefðbundins landsleikjaglugga voru liðin að mestu skipuð leikmönnum sem leika í sínu heimalandi. Í byrjunarliði Íslands var það aðeins Jóhann Berg Guðmundsson sem spilar ekki á Íslandi en aðrir leikmenn spila með liðum hér heima.

Það voru Íslendingar sem áttu fyrsta færi leiksins strax eftir 12 mínútna leik og ekki gott að segja hvort leikurinn hefði þróast öðruvísi ef það hefði nýst. Mexíkó skoraði tvö mörk með stuttu millibili um miðjan hálfleikinn  og það þriðja kom eftir korters leik í seinni hálfleik. Nokkrum mínútum síðar komu þeir Hallgrímur Mar og Hans Viktor inn á í liði Íslands og uppaldi KA-maðurinn Daníel Hafsteinsson, sem nú er í herbúðum Víkings, kom inn á þegar skammt var til leiksloka. Mexíkóar bættu svo fjórða markinu við í uppbótartíma og innsigluðu þar með öruggan sigur sinn.

Helstu tilþrif leiksins má sjá í þessu myndbandi.

Evrópskt gráelri - Fyrsti hluti

Sigurður Arnarson skrifar
25. febrúar 2026 | kl. 10:00

Við getum gert „allt“ … en ekki „allt á sama tíma“

Hrafnhildur Reykjalín skrifar
24. febrúar 2026 | kl. 09:00

Epískar hörmungar í Freyvangi!

Rakel Hinriksdóttir skrifar
23. febrúar 2026 | kl. 16:00

Erlingur fær ekki endurhæfingu

Ólafur Þór Ævarsson skrifar
23. febrúar 2026 | kl. 11:00

Ferðin austur

Jóhann Árelíuz skrifar
22. febrúar 2026 | kl. 06:00

Smíði og flutningur gamla Lamba á Glerárdal árið 1975

Hjalti Jóhannesson skrifar
21. febrúar 2026 | kl. 06:00