Fara í efni
Pistlar

Richi González stýrir karlalandsliði Albaníu

Richi González í leikhléi með karlaliði Þórs í vetur. Mynd: Helgi Heiðar Jóhannesson.

Ricardo „Richi“ González, þjálfari karlaliðs Þórs í körfubolta og aðstoðarþjálfari kvennaliðsins, hefur tekið að sér að stýra karlalandsliði Albaníu meðfram störfum sínum fyrir körfuknattleiksdeild Þórs. Þetta kemur fram í frétt á vefnum Cancha Latina, sem fjallar um körfubolta í rómönsku Ameríku og öðrum spænskumælandi löndum.

Landslið Albaníu tekur þátt í forkeppni fyrir undankeppni EuroBasket 2029 og fyrsta verkefni Richis fyrir Albani verður heimaleikur gegn Slóvakíu mánudaginn 2. mars. Albanir eru einnig í riðli með Kósóvó. Slóvakía var í efsta styrkleikaflokki fyrir forkeppnina, Kósóvó í öðrum og Albanía í þriðja. Albanir hafa nú þegar spilað tvo leiki í riðlinum og tapað báðum, fyrst útileik gegn Slóvakíu 63-73 og svo heimaleik gegn Kosovo, 84-99. Þeir mæta Slóvökum á mánudag, eins og áður sagði, og svo Kosovo á útivelli 2. júlí í seinasta leik sínum í þessari forkeppni.

Fram kemur í frétt Cancha Latina albanska landsliðið sé það sjötta sem Richi stjórnar, en hann hefur áður stýrt landsliðum Úrúgvæ, Síle, Norður-Kóreu, þar sem hann stýrði bæði kvenna- og karlaliðinu, Túnis og Sýrlands. Á ferlinum hefur hann þjálfað félagslið á Spáni, í Bólivíu, Síle, Noregi, Fílabeinsströndinni, Venesúela og Dóminíska lýðveldinu, auk Íslands. Að öllu meðtöldu hefur hann þjálfað landslið og félagslið í 13 löndum í fjórum heimsálfum.

Richi mun vinna fyrir albanska landsliðið meðfram störfum sínum fyrir körfuknattleiksdeild Þórs og er verkefnið í Albaníu að sjálfsögðu með samþykki körfuknattleiksdeildar Þórs. Hann verður aðeins fjarverandi í eina viku vegna verkefnisins núna.

„Ég er mjög þakklátur Andra og körfuknattleiksdeild Þórs fyrir stuðninginn og að gera þetta mögulegt,“ sagði Richi þegar tíðindamaður akureyri.net spurði hann út í verkefnið í morgun og á þar við Guðjón Andra Gylfason, formann körfuknattleiksdeildarinnar.

Evrópskt gráelri - Fyrsti hluti

Sigurður Arnarson skrifar
25. febrúar 2026 | kl. 10:00

Við getum gert „allt“ … en ekki „allt á sama tíma“

Hrafnhildur Reykjalín skrifar
24. febrúar 2026 | kl. 09:00

Epískar hörmungar í Freyvangi!

Rakel Hinriksdóttir skrifar
23. febrúar 2026 | kl. 16:00

Erlingur fær ekki endurhæfingu

Ólafur Þór Ævarsson skrifar
23. febrúar 2026 | kl. 11:00

Ferðin austur

Jóhann Árelíuz skrifar
22. febrúar 2026 | kl. 06:00

Smíði og flutningur gamla Lamba á Glerárdal árið 1975

Hjalti Jóhannesson skrifar
21. febrúar 2026 | kl. 06:00