Ber í skógi
21. október 2026 | kl. 12:00
Þór heldur sæti sínu í efstu deild Íslandsmótsins í knattspyrnu en KA er fallið niður í Lengjudeildina.
Þór vann FH 2:1 á útivelli í dag og lýkur keppni með 30 stig, jafnmörg stig og FH. KA burstaði ÍBV 5:1 á heimavelli en það dugði skammt því liðið endar í næst neðsta sæti með 29 stig. ÍBV var þegar fallið með 22 stig.
Þórsarar léku á ný í efstu deild í sumar eftir 12 ára fjarveru en KA-menn kveðja Bestu deildina eftir að hafa leikið þar 10 ár í röð.
Meira síðar