Fara í efni
Pistlar

Fjórir úr KA í sigurliði U20 smáþjóða í blaki

Sölvi Hafþórsson, Ágúst Leó Sigurfinnsson, Hákon Freyr Arnarsson og Svanur Hafþórsson. Myndin er fengin af Facebook-síðu KA.

Blakdeild KA átti fjóra fulltrúa í U20 landsiði karla sem vann SCA-keppni í blaki, smáþjóðamót sem gefur þjóðum möguleika á stigasöfnun og er jafnframt undankeppni fyrir Evrópumót U20. Með sigrinum tryggði liðið rétt til þátttöku í lokakeppni EM sem fram fer sumarið 2027. Frá þessu er sagt á Facebook-síðu félagsins og á vefnum blakfrettir.is. SCA eru samtök smáþjóða og stendur fyrir Small Countries Association. Mótið fór fram í Skotlandi. 

Fulltrúar KA í U20 landsliðinu voru þeir Ágúst Leó Sigurfinnsson, Hákon Freyr Arnarsson, Svanur Hafþórsson og Sölvi Hafþórsson. Ágúst Leó var valinn í úrvalslið mótsins. 

Íslenska liðið vann það írska í úrslitaleik með þremur hrinum gegn einni, 25-18, 25-19, 16-25 og 25-17. Þar með vann íslenska liðið alla leiki sína í mótinu, en liðið hafði áður sigrað Skota, Íra og Norður-Íra, áður en það mætti írska liðinu öðru sinni í úrslitaleiknum. Með sigrinum tryggði liðið sér þáttökurétt á Evrópumóti U20 næsta sumar, en það mót verður í Króatíu og Svartfjallalandi.
 

Nokkur ráð til að líða betur í skammdeginu

Guðrún Arngrímsdóttir skrifar
20. október 2026 | kl. 12:00

Skáldkonan á Ljósavatni

Jóhann Árelíuz skrifar
18. október 2026 | kl. 10:00

Að vera góður (með sig)

Stefán Þór Sæmundsson skrifar
17. október 2026 | kl. 11:00

Samanburður broddhlyns og garðahlyns

Sigurður Arnarson skrifar
14. október 2026 | kl. 10:45

Lífið í búningsklefanum

Pétur Guðjónsson skrifar
12. október 2026 | kl. 13:30

Vænting

Jón Hlöðver Áskelsson skrifar
11. október 2026 | kl. 06:00