Fara í efni
Pistlar

Skýr tengsl ofþyngdar barna og kæfisvefns

Mynd: Þorgeir Baldursson

Skýr tengsl eru milli líkamsþyngdar barna og kæfisvefns. Þetta kemur fram í rannsókn sem er hluti umfangsmikils rannsóknarverkefnis á Sjúkrahúsinu á Akureyri (SAk) sem miðar að því að bæta greiningu og meðferð við kæfisvefni hjá börnum. Niðurstöður rannsóknarinnar benda einnig til þess að ógreindur kæfisvefn sé algengari hjá börnum en áður var talið; alls reyndust 22,7% barnanna vera með kæfisvefn. Þar af voru 16,2% með miðlungs-alvarlegan kæfisvefn og 6,5% með alvarlegan kæfisvefn.

Greint er frá þessu á vef SAk í morgun. Tilkynningin er svohljóðandi í heild; millifyrirsagnir eru akureyri.net:

Nýlega birtist vísindagrein þar sem fjallað er um svefn barna. Rannsóknin er hluti af umfangsmiklu rannsóknarverkefni á Sjúkrahúsinu á Akureyri (SAk) sem miðar að því að bæta greiningu og meðferð við kæfisvefni hjá börnum.

Kæfisvefn getur haft neikvæð áhrif á bæði líkamlega og andlega heilsu. Í rannsókninni var sérstaklega skoðað hversu algengur kæfisvefn er meðal ungra barna og hvort tengsl væru á milli þyngdarþróunar, líkamsþyngdar og kæfisvefns.

6,5% með alvarlegan kæfisvefn

Rannsóknin náði til 371 barns á aldrinum 4–9 ára, sem samsvarar um 29% barna í almennu þýði á rannsóknarsvæðinu. Svefn barnanna var metinn bæði með stöðluðum spurningalistum og með hlutlægum heimamælingum á svefni yfir tvær nætur. Niðurstöðurnar benda til þess að ógreindur kæfisvefn sé algengari hjá börnum en áður var talið, en alls reyndust 22,7% barnanna vera með kæfisvefn. Þar af voru 16,2% með miðlungs-alvarlegan kæfisvefn og 6,5% með alvarlegan kæfisvefn.

Mynd af vef Sjúkrahússins á Akureyri

Niðurstöðurnar leiddu einnig í ljós skýr tengsl milli líkamsþyngdar og kæfisvefns. Börn með ofþyngd eða offitu reyndust vera í nær þrefalt meiri hættu á að vera með miðlungs eða alvarlegan kæfisvefn samanborið við börn í kjörþyngd. Niðurstöðurnar undirstrika þörfina fyrir aðgengilegar, áreiðanlegar og hlutlægar aðferðir við greiningu svefnraskana hjá ungum börnum.

Þverfaglegur hópur á SAk

Notast var við svefnmælitæki (hring) frá fyrirtækinu SleepImage, sem byggir á 15 ára þróunarstarfi í samstarfi við Harvard-háskóla. Tækið er FDA og CE vottað lækningatæki. Hringurinn er þægilegur í notkun og gerir mögulegt að framkvæma svefnmælingar á heimili barnsins. Notkun slíkrar tækni opnar nýja möguleika í skimun og greiningu svefntengdra öndunartruflana hjá börnum.

Rannsóknarverkefnið er leitt af þverfaglegum hópi starfsfólks á SAk. Umsjónarmenn verkefnisins eru Hannes Petersen, háls-, nef- og eyrnalæknir, Laufey Hrólfsdóttir, deildarstjóri mennta- og vísindadeildar og Gróa Björk Jóhannesdóttir, forstöðulæknir barnalækninga. Ingibjörg Ingólfsdóttir, hjúkrunarfræðingur var fyrsti höfundur þessarar greinar. Samstarfsaðilar verkefnisins eru Sólveig Dóra Magnúsdóttir, eigandi SleepImage, og Þórhallur Ingi Halldórsson, prófessor við matvæla- og næringarfræðideild HÍ. Auk þess taka þátt í verkefninu Erla Guðbjörg Hallgrímsdóttir sérnámsgrunnslæknir og Magnús Ingi Birkisson sérnámslæknir.

Verkefnið hefur hlotið styrki frá vísindasjóðum SAk og Háskólans á Akureyri, auk styrkja frá Nýsköpunarsjóði námsmanna og Lýðheilsusjóði.

  • Umrædd vísindagrein er aðgengileg hér: 

Obstructive sleep apnea in children: prevalence and association with overweight and obesity

Glímt við Selána

Jóhann Árelíuz skrifar
10. maí 2026 | kl. 06:00

Hús dagsins: Sæborg í Glerárþorpi

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
09. maí 2026 | kl. 06:00

Attenborough og trjávernd

Sigurður Arnarson skrifar
08. maí 2026 | kl. 21:00

Að bjarga heyi. Skáldin um landlæsi

Sigurður Arnarson skrifar
06. maí 2026 | kl. 18:00

Persónuleiki og fíkn

Ólafur Þór Ævarsson skrifar
06. maí 2026 | kl. 06:00

Hversu vel hreyfist þú? Getur verið að þig vanti hreyfanleika?

Guðrún Arngrímsdóttir skrifar
05. maí 2026 | kl. 06:00