Fara í efni
Pistlar

Dagþjónusta geðdeildar SAk flyst í miðbæinn

Hluti af dag- og göngudeildarþjónustu geðdeildar SAk flyst í Hafnarstræti 97, 6. hæð. Gengið er inn frá Gilsbakkavegi eða úr göngugötunni. Mynd: sak.is.

Nú standa yfir flutningar á hluta af dag- og göngudeildarþjónustu geðdeildar Sjúkrahússins á Akureyri (SAk) í nýtt húsnæði að Hafnarstræti 97, 6. hæð. Þjónustan var áður til húsa í Seli, vestan aðalbyggingar SAk, en greint var frá því á vefsíðu SAk sl. haust að greinst hefði mygla í húsnæðinu og aðgerða væri þörf.

Fram kemur í frétt á vefsíðu SAk að sú starfsemi sem flyst nær til allrar dagþjónustu sem sinnir bæði legudeildar- og göngudeildarsjúklingum, sem og hluta af göngudeildarþjónustu og að flutningarnir muni hafa tímabundin áhrif á þjónustu. Tekið er fram að flestir sjúklingar í dagþjónustu á göngudeild hafi þegar fengið boðun í viðtöl á næstu vikum á nýjum stað. 

Verk gömlu meistaranna

Jóhann Árelíuz skrifar
12. apríl 2026 | kl. 06:00

Birki og beit

Sigurður Arnarson skrifar
08. apríl 2026 | kl. 08:00

Hús dagsins: Hafnarstræti 35

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
07. apríl 2026 | kl. 22:00

Þegar lífið hægir á manni

Guðrún Arngrímsdóttir skrifar
07. apríl 2026 | kl. 08:00

Höfðingsskapur á Hofi

Jóhann Árelíuz skrifar
05. apríl 2026 | kl. 06:00

Af húsaflutningum Ferðafélags Akureyrar

Hjalti Jóhannesson skrifar
04. apríl 2026 | kl. 10:30