Fara í efni
Pistlar

Krabbameinsfélagið færði SAk dælur að gjöf

Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis færði heimahlynningu Sjúkrahússins á Akureyri (SAk) nýlega þrjár nýjar CADD-lyfjadælur að gjöf.

CADD lyfjadælur eru litlar, rafknúnar dælur sem notaðar eru til að gefa sjúklingum lyf stöðugt eða eftir þörfum yfir ákveðinn tíma. Þær eru einkum nýttar í verkjameðferð þar sem þörf er á nákvæmri og samfelldri lyfjagjöf.

Greint er frá gjöfinni á vef SAk. „Heimahlynning notar lyfjadælur í líknar- og lífslokameðferð í heimahúsum sem gefur einstaklingum og fjölskyldum möguleika á að vera heima í sinni meðferð,“ segja hjúkrunarfræðingar heimahlynningar. „Þetta skiptir miklu máli í einkennameðferð sjúklinga og fyrir lífsgæði sjúklinga og aðstandenda á þessum viðkvæma tíma og eykur öryggi og samfellu í meðferð.“

KAON hefur um árabil lagt sitt af mörkum til að efla þjónustu við sjúklinga og fjölskyldur þeirra, segir á vef SAk. Félagið veitir fólki sem hefur greinst með krabbamein og aðstandendum þeirra fjölbreytta þjónustu.

„Við hjá KAON leggjum mikla áherslu á að styðja við úrræði sem bæta líðan fólks sem glímir við alvarleg veikindi,“ segir Pétur Þór Jónasson, formaður KAON og bætir við „Það er okkur því mikilvægt að geta lagt okkar af mörkum til að gera fólki kleift að dvelja heima eins lengi og kostur er, með viðeigandi stuðningi og meðferð.“

  • Á myndinni eru fulltrúar SAk og KAON þegar gjöfin var afhent. Frá vinstri: Valgerður Þorsteinsdóttir, Dóra Björk Jóhannsdóttir, Auðbjörg Geirsdóttir, Þórdís Rósa Sigurðardóttir, Pétur Jónasson frá KAON, Hafdís Sif Hafþórsdóttir frá KAON, Arnar Arnarson frá KAON, Rannveig Birna Hansen, Hrefna Hafdal, Kristín Sólveg Bjarnadóttir, Jósefína Elín Þórðardóttir og Guðmunda Ó Guðmundsdóttir.

Glímt við Selána

Jóhann Árelíuz skrifar
10. maí 2026 | kl. 06:00

Hús dagsins: Sæborg í Glerárþorpi

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
09. maí 2026 | kl. 06:00

Attenborough og trjávernd

Sigurður Arnarson skrifar
08. maí 2026 | kl. 21:00

Að bjarga heyi. Skáldin um landlæsi

Sigurður Arnarson skrifar
06. maí 2026 | kl. 18:00

Persónuleiki og fíkn

Ólafur Þór Ævarsson skrifar
06. maí 2026 | kl. 06:00

Hversu vel hreyfist þú? Getur verið að þig vanti hreyfanleika?

Guðrún Arngrímsdóttir skrifar
05. maí 2026 | kl. 06:00