Skíðamót Íslands, íshokkí og Þór-KA
Skíðamót Íslands í alpagreinum hefst í Hlíðarfjalli fyrir hádegi í dag. Úrslitaleikur A-deildar karla í Kjarnafæðimótinu í knattspyrnu er á dagskrá í kvöld og eins og oftast áður eru það Þór og KA sem mætast í úrslitum. Leikið verður í Boganum og hefst leikurinn kl. 18:00. Frestaður þriðji leikur í úrslitaeinvígi Toppdeildar kvenna í íshokkí er einnig kominn á dagskrá í dag, hefst kl. 16:45 í Skautahöllinni á Akureyri
Skíðamót Íslands í alpagreinum
Mótið hefst fyrir hádegi í dag í Hlíðarfjalli og stendur til sunnudags.
- Svig er á dagskránni í dag, keppni hefst kl. 10:00 og fyrsti keppandi í seinni ferð rennir sér af stað kl. 11:45.
Keppt verður í stórsvigi á morgun, laugardag, og samhliðasvigi á sunnudag.
Spennan magnast í íshokkíeinvíginu
Þriðji leikur í úrslitakeppni Toppdeildar kvenna í íshokkí er á dagskrá í Skautahöllinni á Akureyri í dag, en honum var frestað um einn dag vegna óveðursins sem gekk yfir landið í gær. Staðan í einvíginu er 1-1 og því ljóst að viðureignin fer að minnsta kosti í fjóra leiki.
SA vann fyrsta leikinn á Akureyri 1-0, en SR svaraði með 2-1 sigri í öðrum leik eftir framlengingu og vítakeppni.
- Toppdeild kvenna í íshokkí
Úrslit, leikur 3
Skautahöllin á Akureyri kl. 16:45
SA - SR - Útsending: icehockeyiceland.tv
Áskrift að rás eða stökum leikjum
Úrslitaleikur Kjarnafæðimótsins til styrktar Kvennaathvarfinu
- Kjarnafæðimótið í knattspyrnu, A-deild karla
Úrslitaleikur
Boginn kl. 18
Þór - KA
Knattspyrnudómarafélag Norðurlands stendur fyrir Kjarnafæðimótinu ár hvert. Að venju verður selt inn á úrslitaleikinn og mun ágóðinn renna til Kvennaathvarfsins á Akureyri að þessu sinni.
Gildi – þinn innri áttaviti
Hús dagsins: Aðalstræti 54 og 54a
Skammtað í aska
Haldið á brattann