Fara í efni
Pistlar

Sigurður Helgi og Inga Björg til liðs við KA

Miguel Mateo Castrillo þjálfari býður þau Sigurð Helga og Ingu Björgu velkomin í KA. Mynd: ka.is.

Blakdeild KA hefur fengið góðan liðsstyrk fyrir komandi tímabil en systkinin Sigurður Helgi Brynjúlfsson og Inga Björg Brynjúlfsdóttir eru gengin til liðs við KA frá Völsungi á Húsavík.

Í frétt á vefsíðu KA segir að þrátt fyrir ungan aldur hafi þau bæði vakið athygli undanfarin ár, átt sæti í yngri landsliðum Íslands, og félagið bindur vonir við að þau styrki bæði karla- og kvennaliðið í baráttunni á toppi íslensks blaks á næsta tímabili. Karlalið KA varð Íslandsmeistari í vetur en kvennaliðið hafnaði í öðru sæti í öllum keppnum sem það tók þátt í og ljóst að bæði liðin ætla sér að berjast áfram á toppnum.

Sigurður Helgi er 19 ára gamall og spilar á miðju. Hann hefur leikið fyrir Völsung frá því hann var 13 ára gamall en hann var valinn besti leikmaður Völsungs árið 2023. Hann var fyrirliði liðsins á síðustu leiktíð en Völsungur komst meðal annars í úrslitahelgi Kjörísbikarsins þar sem Sigurður átti virkilega gott tímabil.

Inga Björg er 16 ára gömul og hefur undanfarin tvö ár verið kjörin efnilegasti leikmaður Unbroken-deildarinnar og það verðskuldað en Inga hefur þrátt fyrir ungan aldur verið í lykilhlutverki í öflugu liði Völsungs sem lék til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn árið 2025 og féll úr leik gegn KA í undanúrslitum á nýliðnu tímabili.

Í fréttinni segir að hjá KA sé lögð rík áhersla á unga leikmenn og sterkt yngriflokkastarf hafi verið eitt af lykilatriðum í uppbyggingu félagsins undanfarin ár. Koma Sigurðar og Ingu fellur vel að þeirri stefnu og segja forsvarsmenn félagsins spennandi að fá þau inn í metnaðarfullt umhverfi KA.

Takk fyrir Patti Smith

Ragnar Hólm Ragnarsson skrifar
03. júní 2026 | kl. 19:30

Randahlynur og kynusli

Sigurður Arnarson skrifar
03. júní 2026 | kl. 10:30

Meðvituð hreyfing

Guðrún Arngrímsdóttir skrifar
02. júní 2026 | kl. 06:00

Strákur að norðan

Ólafur Þór Ævarsson skrifar
31. maí 2026 | kl. 11:00

Frá Búastöðum í Borgir

Jóhann Árelíuz skrifar
31. maí 2026 | kl. 06:00

Æskuvinur minn Kunta Kinte

Orri Páll Ormarsson skrifar
29. maí 2026 | kl. 11:30