Dagur Árni Heimisson kominn heim í KA á ný
Handboltamaðurinn Dagur Árni Heimisson er genginn til liðs við KA á ný eftir eins árs dvöl hjá Val í Reykjavík. Greint er frá því á samfélagsmiðlum KA í dag að Dagur Árni hafi skrifað undir tveggja ára samning við uppeldisfélagið.
Dagur, sem verður tvítugur í haust, getur bæði leikið sem leikstjórnandi og skytta „er hluti af hinum ógnarsterka 2006 árgangi KA en strákarnir töpuðu ekki leik í rúmlega tvö ár á yngriflokkaferli sínum er þeir hömpuðu öllum þeim titlum sem í boði voru á Íslandi áður en þeir urðu Partille Cup meistarar en þar lögðu þeir mörg af sterkustu liðum Norðurlandanna,“ segir á vef KA.
Dagur er einn allra efnilegasti leikmaður landsins og hefur árum saman verið lykilmaður í yngri landsliðunum. Meiðsli settu strik í reikninginn í vetur og hann var því ekki í eins stóru hlutverki hjá Val og gert var ráð fyrir, en það er mikill styrkur fyrir KA að hann snúi heim.
Fréttin á vef KA í heild: Dagur Árni snýr aftur heim!
Um menntakerfið á tímum gervigreindar
Silkitoppa
Í aðdraganda kvennakvölds: Með storminn í fangið
Viðvíkurförin