Fara í efni
Pistlar

Opinn hádegisfundur um nýbyggingu við SAk

Sjúkrahúsið á Akureyri (SAk) og Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE) efna til opins hádegisfundar um nýbyggingu sjúkrahússins, sem verður algjör bylting fyrir heilbrigðisþjónustu á starfssvæði þess, eins og segir í tilkynningu frá SAk. Fundurinn fer fram í Hofi miðvikudaginn 19. nóvember, og stendur frá kl. 12 til kl. 13. Að auki verður hægt að fylgjast með fundinum í beinu streymi.

Fram kemur að til fundarins sé meðal annars efnt vegna þess að við undirbúning nýbyggingarinnar vilji fulltrúar SAk gjarnan eiga í opnu samtali við samfélagið, svara spurningum og hlusta á ábendingar. Eins og áður segir stendur fundurinn í eina klukkustund og verður því stuttur og snarpur.

Dagskrá fundarins er eftirfarandi:

  • Hildigunnur Svavarsdóttir, forstjóri SAk, opnar fundinn
  • Gunnar Líndal Sigurðsson, verkefnastjóri á sviði rekstrar og klínískrar stoðþjónustu, fer yfir stöðu verkefnisins, undanfara og áætlanir
  • Vænt áhrif nýbyggingar á starfsemi, sjúklinga og starfsfólk:
    • Sólveig Hulda Valgeirsdóttir, deildarstjóri lyflækningadeildar, og Bryndís María Davíðsdóttir, deildarstjóri skurðlækningadeildar
    • Gestur Guðrúnarson, deildarstjóri dag- og göngudeildar geðsviðs, og Ragnheiður Reykjalín Magnúsdóttir, aðstoðardeildarstjóri dag- og göngudeildar geðsviðs
    • Bernhard Hendrik Gerritsma, deildarstjóri legudeildar geðdeildar og Valborg Lúðvíksdóttir, aðstoðardeildarstjóri legudeildar geðdeildar
  • Björn Gunnarsson, sérfræðingur á gæðadeild, fjallar um sjúkraflug

Að erindunum loknum gefst tækifæri til að spyrja spurninga. Fundarstjóri er Hilda Jana Gísladóttir, samskiptastjóri SAk. Hægt verður að kaupa súpu og brauð á staðnum.

Hlekkur á beint streymi frá fundinum

Birna berst líka við kerfið

Ólafur Þór Ævarsson skrifar
13. mars 2026 | kl. 13:00

Gróður á lóðarmörkum

Sigurður Arnarson skrifar
11. mars 2026 | kl. 10:30

Drepfyndin óvissuferð hjá Leikfélagi Hörgdæla

Rakel Hinriksdóttir skrifar
10. mars 2026 | kl. 11:00

Flækjum ekki hlutina

Guðrún Arngrímsdóttir skrifar
10. mars 2026 | kl. 06:00

Frostaveturinn 1918

Jóhann Árelíuz skrifar
08. mars 2026 | kl. 15:00

Börkur berst við kerfið

Ólafur Þór Ævarsson skrifar
08. mars 2026 | kl. 13:30