Fara í efni
Pistlar

Samið um land fyrir sleðabraut í Hlíðarfjalli

Mynd af sleðabraut erlendis. Skjáskot úr umsókninni sem rekstraraðili brautarinnar sendi inn í hugmyndasamkeppni Akureyrarbæjar um nýja afþreyingu í Hlíðarfjalli.

Akureyrarbær og Kambagil ehf. hafa undirritað samning um afnot af landi til reksturs sleðabrautar milli Hlíðarfjalls og Hálanda. Þetta kemur fram í frétt á vef Akureyrarbæjar.

Brautin verður allt að 1.800 metra löng en verkefnið á rætur að rekja til hugmyndasamkeppni um nýja afþreyingu í Hlíðarfjalli. Hugmyndin er að brautin verði í rekstri allt árið og er því góð viðbót við fyrirætlanir um að efla Hlíðarfjall sem heilsársafþreyingu. Stefnt er að því að framkvæmdir hefjist árið 2026 og að brautin verði opnuð sumarið 2027, en í síðasta lagi sumarið 2028.

Leigutími samningsins er 25 ár frá opnun, með möguleika á endurskoðun og framlengingu síðar. Rekstraraðili mun einnig hafa heimild til að samnýta bílastæði Hlíðarfjalls.

Verkefnið er háð því að fjármögnun fáist og að öll tilskilin leyfi verði veitt, að því er segir á vef Akureyrarbæjar.

Edda og ADHD greiningin

Ólafur Þór Ævarsson skrifar
02. mars 2026 | kl. 12:30

Hús dagsins: Lundargata 9

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
01. mars 2026 | kl. 06:00

Innra með okkur öllum er Birtíngur

Rakel Hinriksdóttir skrifar
27. febrúar 2026 | kl. 13:00

Evrópskt gráelri - Fyrsti hluti

Sigurður Arnarson skrifar
25. febrúar 2026 | kl. 10:00

Við getum gert „allt“ … en ekki „allt á sama tíma“

Hrafnhildur Reykjalín skrifar
24. febrúar 2026 | kl. 09:00

Epískar hörmungar í Freyvangi!

Rakel Hinriksdóttir skrifar
23. febrúar 2026 | kl. 16:00