Fara í efni
Pistlar

Ólína Einarsdóttir nýr taugalæknir á SAk

Ólína Einarsdóttir hefur hafið störf sem sérfræðingur í taugalækningum við Sjúkrahúsið á Akureyri (SAk). Hún kemur til SAk eftir rúmlega tveggja ára starf sem sérfræðingur í taugalækningum í Helsingborg í Svíþjóð.

Í frétt á vefsíðu SAk kemur fram að Ólína hafi lokið læknanámi frá Háskólanum í Debrecen í Ungverjalandi. Á námsárunum starfaði hún á Sjúkrahúsinu á Akureyri og eftir útskrift einnig á heilsugæslunni á Dalvík og á Hlíð. Hún flutti síðar til Svíþjóðar þar sem hún hóf sérnám í taugalækningum í Helsingborg. Frá ársbyrjun 2024 hefur hún starfað þar sem sérfræðingur, bæði við deildarstörf og á göngudeild.

Ólína hefur sérstakan áhuga á MS-sjúkdómnum og tók meðal annars þátt í uppbyggingu MS-teymis og göngudeildar í Helsingborg árið 2023.

„Það er spennandi að fá tækifæri til að byggja upp taugagöngudeild og efla taugalækningaþjónustu á Norðurlandi,“ segir Ólína í fréttinni á vef SAk. Hún segist einnig hlakka til samstarfsins við starfsfólk sjúkrahússins og að taka þátt í uppbyggingu þjónustunnar til framtíðar.

Hús dagsins: Norðurgata 33

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
25. október 2026 | kl. 21:00

Beitarkóngur á Borgum

Jóhann Árelíuz skrifar
25. október 2026 | kl. 06:00

Ber í skógi

Sigurður Arnarson skrifar
21. október 2026 | kl. 12:00

Nokkur ráð til að líða betur í skammdeginu

Guðrún Arngrímsdóttir skrifar
20. október 2026 | kl. 12:00

Skáldkonan á Ljósavatni

Jóhann Árelíuz skrifar
18. október 2026 | kl. 10:00

Að vera góður (með sig)

Stefán Þór Sæmundsson skrifar
17. október 2026 | kl. 11:00