Fara í efni
Pistlar

Ásgeir Örn Jónsson ráðinn forstöðulæknir

Ásgeir Örn Jónsson, sérfræðingur í bráðalækningum, hefur verið ráðinn forstöðulæknir bráðalækninga á Sjúkrahúsinu á Akureyri (SAk). Þetta kemur fram á vef stofnunarinnar.

Ásgeir lauk læknanámi frá Háskólanum í Debrecen í Ungverjalandi. „Hann hefur víðtæka starfsreynslu og hefur starfað á heilsugæslustöðvum á höfuðborgarsvæðinu, á Kirkjubæjarklaustri, Akranesi, Höfn og Akureyri. Auk þess hefur hann starfað á Landspítala og við Skånes universitetssjukhus í Lundi í Svíþjóð,“ segir í tilkynningu á vef SAk.

„Það er mikill heiður að fá tækifæri til að leiða starfsemi bráðalækninga á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Ég hlakka til að takast á við þetta spennandi og krefjandi hlutverk og starfa með því öfluga teymi sem sinnir bráðaþjónustunni. Bráðalækningar byggja á góðri samvinnu, fagmennsku og stöðugri þróun, og markmið mitt er að leggja mitt af mörkum til að efla þjónustuna enn frekar, skapa gott starfsumhverfi og tryggja að sjúklingar fái örugga og góða umönnun,“ er haft eftir Ásgeiri í tilkynningunni.

Hús dagsins: Norðurgata 33

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
25. október 2026 | kl. 21:00

Beitarkóngur á Borgum

Jóhann Árelíuz skrifar
25. október 2026 | kl. 06:00

Ber í skógi

Sigurður Arnarson skrifar
21. október 2026 | kl. 12:00

Nokkur ráð til að líða betur í skammdeginu

Guðrún Arngrímsdóttir skrifar
20. október 2026 | kl. 12:00

Skáldkonan á Ljósavatni

Jóhann Árelíuz skrifar
18. október 2026 | kl. 10:00

Að vera góður (með sig)

Stefán Þór Sæmundsson skrifar
17. október 2026 | kl. 11:00