Fara í efni
Pistlar

Lauren Lapomarda í Þór/KA út tímabilið

Mynd: thorka.is.

Þór/KA hefur samið við varnarmanninn Lauren Lapomarda um að leika með liðinu út yfirstandandi keppnistímabil. Lauren kemur til Akureyrar frá Dallas Trinity FC í Bandaríkjunum en hún á að baki reynslu úr bandaríska háskólaboltanum og atvinnumennsku á Ítalíu.

Í frétt á vefsíðu Þórs/KA kemur fram að Lauren er með tvöfalt ríkisfang, bandarískt og ítalskt, og ólst upp í Texas. Hún hóf ung að æfa knattspyrnu og lék á hæsta stigi unglingaknattspyrnunnar í Bandaríkjunum. Þar tók hún meðal annars þátt í fjölmörgum alþjóðlegum mótum og vann landsmeistaratitla með liðum sínum. Hún lék síðar í fjögur ár með háskólaliði University of Texas og var þar fastamaður í liðinu. Alls lék hún 101 leik fyrir skólann og var í byrjunarliðinu í þeim öllum.

Að háskólanámi loknu hélt hún til Ítalíu og gekk til liðs við Parma Calcio. Lauren sneri síðar aftur til Bandaríkjanna og gekk til liðs við Dallas Trinity FC, sem leikur í USL-deildinni þar í landi. 

Hún segist spennt fyrir því að takast á við nýtt verkefni á Íslandi og kynnast íslenskri knattspyrnu af eigin raun. „Ég er mjög spennt fyrir þessu nýja tækifæri á Íslandi. Ég hlakka til að halda áfram að vaxa sem leikmaður, upplifa nýja deild og menningu og það sem er mikilvægast, að komast aftur á völlinn og spila fyrir liðið,“ segir Lauren í fréttinni á vef Þórs/KA.

Stórkostleg hátíð blásara

Jón Hlöðver Áskelsson skrifar
16. ágúst 2026 | kl. 14:30

Með höfuðið í gini ljónsins

Stefán Þór Sæmundsson skrifar
15. ágúst 2026 | kl. 06:00

Hinn sæti sykurhlynur

Sigurður Arnarson skrifar
12. ágúst 2026 | kl. 15:00

Hverju gefum við pláss?

Hrafnhildur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar
11. ágúst 2026 | kl. 06:00

Byggt á Borgum

Jóhann Árelíuz skrifar
09. ágúst 2026 | kl. 06:00

Frelsisást og feigðarþrá

Stefán Þór Sæmundsson skrifar
08. ágúst 2026 | kl. 06:00