Fyrstu þúsund leikir KA í deildakeppni
KA náði snemma á síðasta ári þeim stóra áfanga að leika sinn eitt þúsundasta leik á Íslandsmóti karla í knattspyrnu, þegar liðið gerði jafntefli, 1-1, við Stjörnuna á heimavelli í 10. umferðinni, 1. júní 2025, þar sem Ásgeir Sigurgeirsson jafnaði metin fyrir KA rétt fyrir leikslok.
KA lék sína fyrstu leiki á Íslandsmótinu árið 1929 og lék þar aftur árin 1932 og 1941 en var síðan í samvinnu við Þór undir merkjum ÍBA, allt til ársins 1975 þegar Akureyrarfélögin tvö hófu bæði keppni í gömlu 3. deildinni, sem samsvarar 2. deild í dag.

1929 –Frásögn Akureyrarblaðsins Norðlings um upphaf Íslandsmótsins í knattspyrnu 1929 þegar KA-menn tóku þátt í fyrsta skipti.
Fyrsti deildaleikur KA fór fram á Melavellinum í Reykjavík 18. júní 1929 þar sem kornungt lið félagsins, elsti leikmaðurinn var 21 árs, tapaði 3-0 fyrir Víkingi. Lið KA kom þá siglandi til höfuðborgarinnar með gufuskipinu Íslandi. KA mætti síðan Val tvisvar á næstu dögum, fyrst varð markalaust jafntefli en síðan vann Valur 4-0 og þar með hafði Akureyrarliðið lokið keppni. Vegna metfjölda liða á Íslandsmótinu, sex, var keppnisfyrirkomulag á þá leið að lið sem tapaði tveimur leikjum var úr leik.

1932 – Frásögn Akureyrarblaðsins Dags 7. júlí 1932 þegar KA keppti öðru sinni á Íslandsmótinu og fagnaði sigri bæði gegn Fram og Víkingi en tapaði fyrir Val og KR. .
Fyrsti sigurleikur og fyrstu mörk KA komu í öðrum leik liðsins af fjórum árið 1932 þegar liðið lagði Fram að velli, 2-0. Akureyrarliðið vann einnig Víking í þeirri suðurferð, 3-0, en tapaði fyrir Val og KR og endaði í þriðja sæti. Árið 1941 gerði KA jafntefli við Fram, 2-2, en tapaði fyrir Val, KR og Víkingi og endaði í neðsta sæti af fimm liðum.

1975 – Þormóður Einarsson, til vinstri, skoraði fyrsta mark KA í deildakeppninni eftir að Akureyrarfélögin hófu að leika undir eigin merkjum á Íslandsmótinu 1975. Hann var einn lykilmanna liðsins og jafnframt formaður knattspyrnudeildar! Eyjólfur Ágústsson, til hægri, skoraði þrennu í fyrsta leik KA í 3. deildinni. Myndin af Þormóði er frá 1972 þegar hann var fyrirliði ÍBA sem sigraði í 2. deild. Myndin af Eyjólfi er frá 1978 þegar hann var kjörinn knattspyrnumaður Akureyrar. Myndir: Páll A. Pálsson og Ragnar Þorvaldsson.
Næsti leikur KA undir eigin merkjum á Íslandsmótinu var í gömlu 3. deildinni (2. deild í dag) 14. júní árið 1975. Fyrsti leikurinn það ár átti reyndar að vera gegn Eflingu á Laugum í Reykjadal 31. maí en honum var frestað um tæpar þrjár vikur. Heimaleikur KA gegn Leiftri frá Ólafsfirði var því fyrsti leikurinn, á Akureyrarvelli laugardaginn 14. júní.
KA lenti undir snemma í leiknum en Þormóður Einarsson jafnaði og skoraði þar með fyrsta mark KA á Íslandsmótinu í 34 ár. Eftir það var einstefna á mark Ólafsfirðinga og lokatölur urðu 7-1, KA í hag. Eyjólfur Ágústsson skoraði þrennu í leiknum og auk Þormóðs skoruðu Jóhann Jakobsson, Ármann Sverrisson og Hafþór Sigurðsson sitt markið hver.

Þúsund – Ásgeir Sigurgeirsson fagnar jöfnunarmarki sínu (1:1) gegn Stjörnunni í þúsundasta deildaleik KA 1. júní á síðasta ári. Mynd: Ármann Hinrik
Af fyrstu 1.000 leikjum KA í þremur efstu deildunum vann liðið 406, gerði 237 jafntefli og tapaði 357 leikjum. KA skoraði 1.603 mörk í þessum þúsund leikjum og fékk á sig 1.430 mörk.
Á milli deilda skiptust leikirnir þannig að 460 voru í efstu deild, 524 í 1. deild og 16 í 2. deild.
Eftir 18 umferðir á þessu ári eru leikirnir orðnir 1.035 talsins og þar af hefur KA unnið 418 leiki, 243 hafa endað með jafntefli og 374 hafa tapast. Mörk KA eru 1.662 gegn 1.498 mörkum. KA lék sinn 500. leik í efstu deild þegar liðið gerði jafntefli við ÍBV í Vestmannaeyjum 19. júlí, 2-2.

348 leikir – Hallgrímur Mar Steingrímsson í þúsundasta deildaleik KA, gegn Stjörnunni í fyrrasumar. Hallgrímur er langleikjahæsti KA-maðurinn frá upphafi. Mynd: Ármann Hinrik
Hallgrímur er lang leikjahæstur
Hallgrímur Mar Steingrímsson er sá KA-maður sem hefur leikið langflesta deildaleiki fyrir félagið en hann á að baki 348 leiki í tveimur efstu deildunum frá árinu 2009, miðað við stöðuna eins og hún er í dag.
Þessir tíu eru leikjahæstir í deildaleikjum fyrir KA í dag:

Frá vinstri: Bjarni Jónsson 208 leikir – Hallgrímur Mar Steingrímsson 348 leikir – Hrannar Björn Steingrímsson 219 leikir – Ásgeir Sigurgeirsson 209 leikir – Elfar Árni Aðalsteinsson 187 leikir. Myndin af Bjarna er tekin í leik gegn Þór snemma sumars 1989, árið sem KA varð Íslandsmeistari en af fjórmenningunum í lok leiktíðarinnar 2016 þegar KA vann næst efstu deild. Myndir: Úr safni Morgunblaðsins og Skapti Hallgrímsson.
- 348 Hallgrímur Mar Steingrímsson, 2009-2014 og 2016-2026
- 232 Steingrímur Birgisson, 1982-2000
- 219 Hrannar Björn Steingrímsson, 2014-2025
- 209 Ásgeir Sigurgeirsson, 2016-2025
- 208 Bjarni Jónsson, 1984-1990 og 1992-1997
- 204 Sándor Matus, 2004-2013
- 200 Erlingur Kristjánsson, 1980-1994
- 192 Dean Martin, 1995-1997, 1999-2004 og 2008-2010
- 187 Elfar Árni Aðalsteinsson, 2015-2024
- 161 Andri Fannar Stefánsson, 2008-2010 og 2019-2025

Frá vinstri: Steingrímur Birgisson 232 leikir – Erlingur Kristjánsson 200 leikir –Dean Martin 192 leikir – Sándor Matus 204 leikir – Andri Fannar Stefánsson 161 leikir.
Með 35 leikjum meira en Þór
Eins og fram kom í grein um þúsundasta leik Þórs, sem var gegn ÍA síðasta sunnudag, er KA með forskot á Þór í leikjafjölda og hefur leikið 35 leikjum meira en keppinautarnir úr Þorpinu.
Munurinn á leikjafjölda Akureyrarliðanna liggur að stórum hluta í því að eftir að leikjum í Bestu deildinni var fjölgað úr 22 í 27 fyrir nokkrum árum lék KA samtals 20 leikjum meira en Þór á árunum 2022 til 2025. Þá lék KA 11 leiki á árunum 1929 til 1942 og ennfremur nægði Þórsurum að leika níu leiki til að vinna 3. deildina árið 1975 á meðan KA þurfti að fara í flókið umspil og spila alls 16 leiki áður en sæti í 2. deild var í höfn.
Hinn sæti sykurhlynur
Hverju gefum við pláss?
Byggt á Borgum
Frelsisást og feigðarþrá