Stórkostleg hátíð blásara
Hljóðheimurinn okkar er alltaf að breytast. Sum hljóð eru óþægileg, eins og hljóðin í belgísku herþotunum. Önnur hljóð auka á dásemd tilverunnar, t.d. seyðandi söngur svartþrasta. Sum falleg hljóð fara fram hjá manni, annað hvort vegna annarra háværari, eða maður sé hreinlega ekki á staðnum. Svo eru önnur hljóð, sem flæða inn með miklum auglýsingum og eftirspurn, þannig að sólmyrkur á jafnvel erfitt að keppa við hana. Svo fara sum ýðurfögur hljóð svo hljóðlega fram hjá að fjöldinn verður þeirra varla var. En manni ber skylda til að segja öðrum frá hugljómun fagurhljóða sem gæða líf manns aukinni gleði og hamingju. En nú á fimmta sumri alþjóða blásturhljóðfærahátíðarinnar Windworks í Norðri, sem haldin hefur verið á Akureyri og bæjum á Norð-Austurlandi, finnst nér unun að segja öðrum frá hvílíkum töfrum ég hef verið sleginn af ótal tónleikum, að hluta tónlist sérsaminni fyrir hátíðina, sem ég hef ríkulega notið. Það er með ólíkindum að slíkt góðgæti sem þessir ótal tónleikar eru, með svo færum blásurum úr öllum heimshornum skuli vera í boði hér við ystu sjónarrönd. Þessi frábæra tónlistarhátíð er einstök jafnvel á heimsvísu. Flautuleikarinn Pamela De Sensi hefur verið aðal drifkrafturinn í að undirbúa þessa hátíð frá upphafi og að afla styrktaraðila. Samstarfskona hennar hér fyrir norðan er Petrea Óskarsdóttir flautuleikari og kennari við Tónlistarskólann á Akureyri. Mér finnst magnað að blómskrúðið sem þessi hátíð er fái að skrýða tónlistargarðinn á Akureyri og nágrenni.
Ég get ekki látið hjá líða að nefna að Manuela Wiesler að heimsglæstum ferli sem flautuleikari loknum gaf Tónlistarskólanum á Akureyri allt sitt merka safn af flautuverkum.
Ég vonast sannarlega til þessi mikla hátíð blásturhljóðfæra megi færa okkur þennan dýrðlega hljóðheim og enn fleiri megi ganga á hljóðið. Innilegar þakkir fyrir mig!
Jón Hlöðver Áskelsson er tónskáld á Akureyri
Hinn sæti sykurhlynur
Hverju gefum við pláss?
Byggt á Borgum
Frelsisást og feigðarþrá