Fara í efni
Pistlar

Kærkominn sigur og mjög verðskuldaður

Mörk gleðja! Erin Flurey, Hulda Ósk Jónsdóttir, Amalía Árnadóttir og Margrét Árnadóttir fagna innilega eftir að Amalía gerði seinna mark Þórs/KA í gærkvöld. Myndir: Ármann Hinrik

Stelpurnar í Þór/KA fögnuðu í gærkvöld fyrsta sigri sumarsins í Bestu deildinni, efstu deild Íslandsmótsins í knattspyrnu. Þær sigruðu lið Þróttar 2:0 á á gervigrasvelli Þórs á Ásnum, VÍS vellinum, og sigurinn var vitaskuld bæði langþráður og kærkominn. Ánægjulegast af öllu er að þessi mikilvægi sigur var mjög verðskuldaður.

Með sigrinum fór Þór/KA upp úr neðsta sæti deildarinnar; hefur nú sex stig úr níu leikjum og komst upp fyrir Fram, sem tapaði fyrir Stjörnunni í gærkvöld og er með fjögur stig, einnig að loknum níu leikjum. Valur er með átta stig og Víkingur níu en bæði eiga einn leik til góða.

Allt annað var að sjá til Stelpnanna okkar í Þór/KA í gærkvöld en í mörgum leikjum fyrr í sumar. Baráttuandi og tröllatrú einkenndi liðið, kraftur var í leikmönnum frá upphafi til enda og allir samstiga á göngunni að stigunum þremur. 

María Dögg Jóhannesdóttir skælbrosandi í hópi samherja eftir að hún braut ísinn með glæsilegu marki í gærkvöld. María Dögg gekk til liðs við Þór/KA fyrir tímabilið frá Tindastóli og þetta var fyrsta mark hennar fyrir Akureyrarliðið. Mynd: Ármann Hinrik

Strax í byrjun leiks fékk Amalía Árnadóttir ágætt tækifæri en Þróttarinn Mollee Swift varði mjög vel og hinum megin skallaði Jelena Tinna framhjá marki Þórs/KA úr algjöru dauðafæri. Föst sending kom óvænt utan af kanti og Jelena náði ekki að stýra boltanum á réttan stað. Þá voru sex mínútur búnar og Þróttarar ógnuðu marki heimaliðsins vart meira í fyrri hálfleiknum og í raun varla fyrr en undir lok leiksins þegar skot langt utan af small í þverslá Þórs/KA-marksins.

Ein breyting var gerð á byrjunarliði Þórs/KA frá því í síðasta leik, markalausu jafntefli við Val í Reykjavík; framherjinn Erin Flurey hóf nú leik en Karen María Sigurgeirsdóttir, sem sögð er lítillega meidd, var á bekk varamanna. Flurey byrjaði mjög vel þegar hún kom til Þórs/KA í vetur en meiðsli hafa hrjáð hana í allt sumar og hún því oft verið fjarri góðu gamni. Hún er augljóslega ekki búin að ná sér alveg en nýtist engu að síður prýðilega; klókur leikmaður sem spilar vel fyrir liðið.

Glæsilegt mark

Aðeins var rúmur stundarfjórðungur liðinn af leiknum þegar hægri bakvörðurinn María Dögg Jóhannesdóttir náði forystu fyrir Þór/KA. Eftir góða sóknarlotu átti Hulda Ósk fasta fyrirgjöf utan af hægri kanti, boltinn hrökk fyrir fætur Elísu Bríetar Björnsdóttur sem skaut í varnarmann og af honum barst boltinn yst út í teig. Þar kom María Dögg á sprettinum og sendi boltann með viðstöðulausu, lúmsku bogaskoti efst í fjærhornið. Glæsilega gert!  María Dögg gekk til liðs við Þór/KA fyrir tímabilið frá Tindastóli og þetta var fyrsta mark hennar fyrir Akureyrarliðið. 

Amalía Árnadóttir kom Þór/KA í 2:0 þegar 25 mín. voru liðnar. Erin Flurey náði boltanum af varnarmanni úti við hliðarlínu vinstra megin, tók á rás inn í vítateig þar sem hún var í þokkalegu færi en sú bandaríska greip sem betur fer til þess ráðs að senda boltann út í teig þar sem Amalía var ein og óvölduð og skoraði af öryggi.

Seinna mark Þórs/KA. Erin Flurey (svartklædd, framan við leikmann Þróttar númer 5) lék inn á teig og komst í þokkalegt færi en gerði það eina rétt; sendi boltann út í vítateig á Amalíu Árnadóttur sem var í mun betra færi ...

... og Amalía þakkaði kærlega fyrir sig og skoraði með föstu innanfótarskoti úr miðjum vítateignum.


Þróttur lék í bikarkeppninni á fimmtudaginn var, tryggði sér þá sæti í undanúrslitum með sigri á Víkingi, en Þór/KA hafði ekki leikið síðan 13. júní. Þreyta kann að hafa sett strik í reikning gestanna en hvort sú var raunin eður ei skiptir norðanmenn ekki máli heldur hitt að miklu meiri kraftur var í leikmönnum Þórs/KA en Þróttar. Hugarfarið var til fyrirmyndar og verður að vera eins það sem eftir lifir sumars því liðið er vitaskuld í mjög erfiðri stöðu. Fyrsti sigurinn, hugarfarið og frammistaðan veit vonandi á gott.

Góð frammistaða miðjumanna Þórs/KA skipti miklu máli. Hildur Anna Birgisdóttir og systurnar Margrét og Amalía Árnadætur réðu ríkjum á miðsvæðinu; krafturinn geislaði af þeim öllum og Þróttarar höfðu sjaldnast erindi sem erfiði í baráttunni.

Vörnin var þétt enda ógnuðu Þróttarar markinu nánast aldrei. Bakverðirnir Angela Mary og María Dögg voru öruggar í flestum aðgerðum og miðverðirnir réðu vel við sitt verkefni; ungur nemur, gamall temur á vel við þann dúett; Arna Sif Ásgrímsdóttir öflug að vanda þótt hún eigi enn eftir að verða betri eftir glímu við meiðsli, og hin bráðefnilega Karen Hulda Hrafnsdóttir, sem er nýorðin 17 ára, fær ekki betri samherja til að læra af. Orðið gamall ætti líklega að vera í gæsalöppum í þessu tilfelli ...

Erin var drjúg í framlínunni, Elísa Bríet átti fína spretti á vinstri kantinum og Hulda Ósk Jónsdóttir var mjög öflug hægra megin, bæði í sókn og vörn. Kraftmikil, áræðin og dugleg í gær, Hulda Ósk.

Leikskýrslan á vef KSÍ

Staðan í deildinni

Hildur Anna Birgisdóttir lék afar vel í gær. Hildur Anna, sem er nýorðin 19 ára, er kraftmikil stelpa og gefur aldrei þumlung eftir.  Mynd: Ármann Hinrik

Hús dagsins: Oddeyrargata 4

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
21. júní 2026 | kl. 06:00

Hlyntré við veggi

Sigurður Arnarson skrifar
17. júní 2026 | kl. 13:30

Hvað ef þú ert að standa þig betur en þú heldur?

Hrafnhildur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar
16. júní 2026 | kl. 06:00

Í minningu sláttumanna og línumerkjara

Orri Páll Ormarsson skrifar
12. júní 2026 | kl. 13:30

Skógarbotnsplöntur

Sigurður Arnarson skrifar
10. júní 2026 | kl. 11:30

Hús dagsins: Syðra Melshús, Gilsbakkavegur 3

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
05. júní 2026 | kl. 06:00