Rúnar og Jón Ingi nýir þjálfarar Þórsliðanna
Körfuknattleiksdeild Þórs gekk frá hvorki fleiri né færri en fjórum samningum í gærkvöld þegar félagið réði Rúnar Ólason sem þjálfara meistaraflokks karla, Jón Inga Baldvinsson sem þjálfara meistaraflokks kvenna, Karen Lind Helgadóttur sem spilandi aðstoðarþjálfara kvennaliðsins og síðast en ekki síst var endurnýjaður samningur við Emmu Karólínu Snæbjarnardóttur, besta leikmann 1. deildarinnar á síðastliðnu tímabili.
Stjórn körfuknattleiksdeildar Þórs lýsir mikilli ánægju með ráðningu Rúnars og Jóns Inga sem aðalþjálfara meistaraflokkanna.
Í tilkynningu félagsins segir meðal annars: „Með ráðningu Rúnars stígur félagið mikilvægt skref í uppbyggingu starfsins. Rúnar mun leiða meistaraflokk karla auk þess að vera yfirþjálfari yngri leikmanna og styrkja tengsl milli yngri flokka og meistaraflokks.“ Þar segir einnig að stefna deildarinnar sé skýr, að byggja upp metnaðarfullt umhverfi þar sem heimamenn og ungir leikmenn fái raunveruleg tækifæri til að þróast og dafna og Rúnar falli vel að þeirri framtíðarsýn þar sem hann komi inn með skýra sýn á uppbyggingu liðs og félags. Rúnar kemur til Þórs úr þjálfarastarfi hjá Stjörnunni.

Guðjón Andri Gylfason, formaður körfuknattleiksdeildar Þórs, og Rúnar Ólason, nýr þjálfari meistaraflokks karla, handsala samninginn í Hamri í gær.
Jón Ingi Baldvinsson tekur við þjálfun meistaraflokks kvenna. Hann er öllum hnútum kunnugur innan körfuknattleiksdeildar Þórs, en hann hefur á undanförnum árum komið að uppbyggingu liðsins af miklum krafti og fagmennsku, eins og segir í tilkynningu félagsins. „Undir hans stjórn hefur liðið tekið mikilvæg skref fram á við og skapað sér sess meðal sterkustu liða landsins. Félagið leggur mikla áherslu á stöðugleika, metnað og faglegt starfsumhverfi og því er áframhaldandi samstarf við Jón Inga mikilvægt skref í þeirri vegferð,“ segir einnig í tilkynningu félagsins.
Jóni Inga til aðstoðar við þjálfun kvennaliðsins verður Karen Lind Helgadóttir, sem vinna mun náið með Jóni Inga að þjálfun, þróun leikmanna og daglegu starfi meistaraflokks. „Karen hefur á undanförnum árum verið mikilvægur þáttur í starfi félagsins og býr yfir góðri þekkingu á leikmannahópi, menningu félagsins og þeirri stefnu sem lögð hefur verið til grundvallar í uppbyggingu kvennastarfsins,“ segir meðal annars í tilkynningunni.

Nýir þjálfarar kvennaliðs Þórs í körfubolta. Karen Lind Helgadóttir aðstoðarþjálfari og Jón Ingi Baldvinsson þjálfari.
Sú besta áfram í Þór
Síðast en ekki síst er það fagnaðarefni fyrir Þórsara að halda hinni bráðefnilegu Emmu Karólínu Snæbjarnardóttur áfram í sínum röðum, en hún hefur skrifað undir nýjan samning við körfuknattleiksdeild félagsins. „Emma er efnilegur leikmaður sem hefur stigið mikilvæg skref í sínum körfuboltaferli á undanförnum árum. Með vinnusemi, metnaði og jákvæðu hugarfari hefur hún unnið sér traust innan félagsins og sýnt að hún á framtíðina fyrir sér í rauðu og hvítu. Samningurinn er jafnframt í takt við þá stefnu félagsins að byggja á ungum og efnilegum leikmönnum og skapa þeim tækifæri til að vaxa og þróast innan félagsins,“ segir í tilkynningunni um Emmu Karólínu og fagnar stjórn körfuknattleiksdeildar því að Emma hafi ákveðið að vera áfram innan raða Þórs.

Guðjón Andri Gylfason og Emma Karólína Snæbjarnardóttir við undirskrift samnings Emmu í gær.
Hvað ef þú ert að standa þig betur en þú heldur?
Í minningu sláttumanna og línumerkjara
Skógarbotnsplöntur
Hús dagsins: Syðra Melshús, Gilsbakkavegur 3