KA niður í 10. sæti eftir fjórða tapið í röð
KA beið lægri hlut gegn Breiðabliki á Kópavogsvelli í dag í viðureign liðanna í 11. umferð efstu deildar karla í knattspyrnu. Heimamenn unnu sanngjarnan 3:1 sigur og KA heldur áfram að síga niður töfluna. Þetta var fjórða tap liðsins í röð og það er nú komið niður í 10. sæti deildarinnar.
Þrátt fyrir að Blikar væru talsvert meira með boltann í fyrri hálfleik tókst þeim ekki að skapa sér nein færi að ráði. KA-menn áttu ágætar rispur inn á milli en Blikar réðu þó ferðinni lengst af.
Fyrsta mark leiksins kom ekki fyrr en á 58. mínútu þegar Blikinn Ágúst Orri Þorsteinsson óð inn í vítateiginn af hægri kantinum, lék á varnarmann og spyrnti boltanum í markið framhjá Steinþóri Má Auðunssyni markverði. Það tók KA ekki nema fimm mínútur að jafna þegar Danijel Dejan Djuric átti flotta sendingu inn í vítateig vinstra megin þar sem Birgir Baldvinsson kom á ferðinni, teygði sig í boltann á undan varnarmanni og þeytti honum viðstöðulaust í fjærhornið. Glæsileg afgreiðsla.
Á 74. mínútu komust heimamenn yfir á ný og aftur var það einstaklingsframtak frá hægri kanti. Óli Valur Ómarsson dansaði þá með boltann inn í vítateiginn, lagði hann svo fyrir sig og þrumaði honum óverjandi í fjærhornið. Mögulega hefðu varnarmenn KA þó getað truflað Óla Val aðeins meira. Skömmu síðar fékk Birgir tækifæri til að jafna leikinn aftur en setti knöttinn í hliðarnetið úr góðu færi. Blikar gerðu síðan út um leikinn á 85. mínútu þegar löng sending sem kom inn í vítateig hrökk af varnarmanni fyrir fætur hins fimmtán ára Arnars Bjarka Gunnleifssonar sem var á auðum sjó og skoraði af miklu öryggi sitt fyrsta mark í efstu deild. Steinþór Már gerði síðan vel að verja frá Viktori Karli Einarssyni úr dauðafæri í uppbótartíma en tapið varð ekki umflúið.
Næsti leikur KA er gegn Stjörnunni í Garðabæ næstkomandi sunnudag en Stjarnan er aðeins einu stigi ofar en KA og leikurinn því geysilega þýðingarmikill fyrir bæði lið.
Hlyntré við veggi
Hvað ef þú ert að standa þig betur en þú heldur?
Í minningu sláttumanna og línumerkjara
Skógarbotnsplöntur