Fara í efni
Pistlar

Íshokkí: Markalaust og tap eftir vítakeppni

Shawlee Gaudreault var örugg í marki SA eins og áður, en henni tókst þó ekki að verja víti Bríetar Maríu Friðjónsdóttur, sem réði úrslitum í vítakeppninni. Mynd: Skapti Hallgrímsson.

Kvennalið SA tapaði sínum fyrstu stigum á tímabilinu í gærkvöld í heimsókn í Laugardalinn þar sem gestgjafarnir í Skautafélagi Reykjavíkur tryggðu sér sigur og aukastigið í vítakeppni eftir markalausan leik og framlengingu.

Fyrstu tveir leikhlutarnir voru tíðindalitlir, nánast tíðindalausir, færin fá, engin mörk og ein refsing. Leikurinn einkenndist af baráttu og gekk báðum liðum illa að skapa sér færi – eða ef til vill mætti alveg orða það þannig að báðum liðum hafi gengið fullkomlega að verjast sóknum andstæðinganna og markverðir liðanna Shawlee Gaudreault hjá SA og Julianna Thomson hjá SR sáu til þess að skotin sem rötuðu á mark fóru ekki inn fyrir línuna. Eina refsingin, sem var á leikmann SA, dugði gestgjöfunum þó ekki til aðná yfirhöndinni.

SA-konur sóttu meira og voru ágengari upp við mark SR. Minnstu munaði að þeim tækist að brjóta ísinn seint í fyrsta leikhlutanum þegar Guðrún Ásta Valentine og Hilma Bóel Bergsdóttir komust inn fyrir vörn SR og voru tvær á móti markmanni, en Julianna í marki SR varði. Hvorugu liðinu tókst að skora í venjulegum leiktíma og reyndar ekki heldur í framlengingu þrátt fyrir þunga sókn SA. Refsing á leikmann SR kveikti von um að SA tækist að klára leikinn í framlengingunni, en það gekk ekki eftir.

Síðasta úrræðið eftir markalausa framlengingu er vítakeppni og þar náði Bríet María Friðjónsdóttir að klára dæmið fyrir SR. Öll önnur víti fóru forgörðum, flest þeirra varin, en eitt skot framhjá markinu.

SR - SA 1-0 (0-0, 0-0, 0-0, 0-0, 1-0)

SR

Varin skot: Julianna Thomson 37 af 37 (100%)
Refsingar: 2 mínútur.

SA

Varin skot: Shawlee Gaudreault 18 af 18 (100%)
Refsingar: 2 mínútur.

Leikskýrsla

Staðan í Toppdeild kvenna

Vænting

Jón Hlöðver Áskelsson skrifar
11. október 2026 | kl. 06:00

Þegar vinnan er farin í hundana

Stefán Þór Sæmundsson skrifar
10. október 2026 | kl. 06:00

Hús dagsins: Norðurgata 26

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
09. október 2026 | kl. 10:45

Tegundir birkiættkvíslarinnar

Sigurður Arnarson skrifar
07. október 2026 | kl. 14:30

Ljósi varpað á leyndardóma heilans

Ólafur Þór Ævarsson skrifar
07. október 2026 | kl. 14:00

Af hverju getur verið svona erfitt að slaka á?

Hrafnhildur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar
06. október 2026 | kl. 06:00