Fjöldi hörkuleikja á íþróttadagskránni
Vikan fram undan býður upp á fjölbreytta skemmtun, örlagaríka leiki, átök erkifjenda, viðureignir deildarmeistara og Íslandsmeistara í blaki og íshokkí og tvíhöfða í körfubolta, sem kemur reyndar í beinu framhaldi af stærsta Pollamóti Þórs í körfubolta hingað til.
- Akureyrarliðin þrjú í Olísdeildum karla og kvenna í handbolta spila í vikunni. Þar eru heimaleikir á dagskrá hjá KA og KA/Þór á fimmtudag og föstudag, en Þór á útileik á föstudag. KA kom sér upp í 2. sætið með sex stig í Olísdeild karla með sigri á Íslandsmeisturum Vals í 4. umferðinni, en Þór er í 7. sæti með fjögur stig. KA/Þór hefur hins vegar átt erfitt uppdráttar og hefur tapað þremur fyrstu leikjum sínum í deildinni.
- Á föstudag ráðast örlög þriggja liða í neðstu sætum Bestu deildar kvenna í knattspyrnu, en þá fer fram lokaumferðin, eða þriðja umferð í neðri hlutanum. Tvö lið munu falla úr deildinni og fyrir lokaumferðina eru þrjú lið í hættu. Þór/KA og Víkingur eru með 22 stig, en Valur með 21 stig. Þór/KA sækir Víking heim á sama tíma og Fram tekur á móti Val. Fram hefur nú þegar tryggt áframhaldandi veru sína í deildinni. Segja má að leikur Þórs/KA og Víkings sé úrslitaleikur því það lið sem vinnur bjargar sér frá falli. Jafntefli gæti nægt Þór/KA ef Valur vinnur ekki Fram, þar sem markatala Þórs/KA er betri en hinna liðanna. En geri Þór/KA og Víkingur jafntefli myndu þau bæði falla ef Valur vinnur Fram.
- Það verður væntanlega tveir hörkuleikir í boði fyrir blakaðdáendur í KA-heimilinu á laguardag og sunnudag þegar KA og Hamar mætast í Unbroken-deild karla. Þar mætast Íslandsmeistarar og deildarmeistarar síðasta tímabils.
- Seinna sama kvöld verður annar hörkuleikur í boði á Akureyri, þegar SA og SR mætast í Toppdeild karla í íshokkí.
- Körfuboltinn fer svo af stað með hvelli. Fyrst verður helgin undirlögð af Pollamóti Þórs í körfubolta á föstudag og laugardag, en síðan verður svokallaður tvíhöfði á sunnudag þegar kvenna- og karlalið Þórs taka á móti nöfnum sínum í Þór frá Þorlákshöfn.
FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER - handbolti
Heldur KA áfram á sigurbraut þegar Eyjamenn, með nýjan aðalþjálfara, koma norður? KA er í 2. sæti deildarinnar og hefur meðal annarra unnið Íslandsmeistarana á útivelli og aðeins tapað einum leik, gegn Þór.
- Handbolti
Olísdeild karla, 5. umferð
KA-heimilið kl. 18
KA - ÍBV
FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER - fótbolti, handbolti
Örlög liðanna í þremur neðstu sætum Bestu deildar kvenna munu ráðast á föstudag. Þór/KA, Víkingur og Valur berjast um eitt sæti í Bestu deildinni á næsta tímabili, en tvö þeirra munu falla og leika í Lengjudeildinni.
- Fótbolti
Besta deild kvenna, neðri hluti
Víkingsvöllur kl. 18
Víkingur - Þór/KA
- Enn er beðið eftir fyrsta sigri KA/Þórs í Olísdeild kvenna. Tekst þeim að vinna Íslandsmeistarana á heimavelli?
- Handbolti
Olísdeild kvenna, 4. umferð
KA-heimilið kl. 18
KA/Þór - Valur
- Tekst Þórsurum að snúa við taflinu eftir tap í síðustu umferð, feta í fótspor grannanna og vinna Íslandsmeistarana á útivelli?
- Handbolti
Olísdeild karla, 5. umferð
Valsheimilið (N1 höllin að Hlíðarenda) kl. 18:30
Valur - Þór
LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER - blak, íshokkí
Hörkuslagur í boði í KA-heimilinu á laugardag þegar Íslandsmeistarar KA taka á móti deildarmeisturum Hamars í fyrri viðureign þessara liða um helgina.
- Blak
Unbroken-deild karla
KA-heimilið kl. 18
KA - Hamar
Slagur Íslandsmeistara og deildarmeistara í íshokkí í boði syðra á laugardag. SA Víkingar sækja SR-inga heim.
- Íshokkí
Toppdeild karla
Skautahöllin í Laugardal kl. 19:45
SR - SA
SUNNUDAGUR 4. OKTÓBER - blak, körfubolti
Seinni viðureign KA og Hamars á dagskrá í dag. Búast má vð hörkuleik.
- Blak
Unbroken-deild karla
KA-heimilið kl. 15
KA - Hamar
Körfuboltalið Þórs hafa verið að undirbúa sig undanfarnar vikur, nýir leikmenn komið í stað annarra sem hafa farið. Formlega hefst keppnistímabilið sunnudaginn 4. október hjá Þórsliðunum og þá með hvelli því það er boðið upp á tvíhöfða, svokallaðan, þegar nafnarnir frá Akureyri og úr Þorlákshöfn mætast, bæði í karla og kvennaflokki. Dagana tvo á undan verður körfuboltasamfélagið á Akureyri reyndar undirlagt af Pollamóti Þórs í körfubolta, því stærsta sem deildin hefur haldið hingað til.
- Körfubolti
1. deild kvenna
Íþróttahöllin á Akureyri kl. 15:30
Þór Akureyri - Þór Þorlákshöfn
- Körfubolti
1. deild karla
Íþróttahöllin á Akureyri kl. 18:00
Þór Akureyri - Þór Þorlákshöfn
Notkun og mikilvægi hafþyrnis
Þurfum við alltaf að vera að verða betri?
Neita að troða nikku í kokið
Takk fyrir mig, Akureyri!