Fara í efni
Pistlar

Hokkídeild SA ræður Richard Hartmann

Skautafélag Akureyrar tilkynnti fyrr í dag um ráðningu slóvakíska íshokkíþjálfarans Richards Hartmann til félagsins. Hann tekur við starfinu af Sheldon Reasbeck, en hann hætti sem kunnugt er fyrir skemmstu og hafa aðstoðarþjálfarar hans, Björn Már Jakobsson og Ingvar Þór Jónsson, stýrt liðinu á meðan þjálfaraleit stóð yfir. 

Richard tekur við þjálfun unglinga- og meistaraflokka félagsins út tímabilið. Í tilkynningu SA segir að ráðningin sé frábært skref fyrir félagið þar sem reynsla hans og sýn falli vel að stefnu félagsins við áframhaldandi leikmannaþróun og uppbyggingu til framtíðar, eins og segir í frétt á vef SA

Um Richard segir einnig í tilkynningu SA: 

Richard á langan leikmannaferil að baki og var öflugur atvinnumaður beggja vegna Atlantshafsins á hæsta stigi áður en hann færði sig yfir í þjálfun á seinni stigum ferilsins. Sem þjálfari hefur Richard síðustu ár leitt Dundee Comets í Skotlandi en undir hans stjórn hefur félagið byggt upp sterk lið sem hafa unnið til fjölda titla og sýnt mikinn stöðugleika. Auk þess hefur Richard starfað sem aðstoðarþjálfari við yngri landslið Bretlands, hann hefur komið að þróun margra öflugra leikmanna en SA metur slíka reynslu mikils, sérstaklega með áherslu félagsins á að skapa sterkan grunn í yngri flokkum.

Richard mun starfa sem yfirþjálfari U16, U18, kvenna- og karlaliða SA. Hann hefur störf hjá Skautafélaginu 2. janúar.

Þegar mamma eyðilagði jólin

Þráinn Lárusson skrifar
14. desember 2025 | kl. 17:00

Orustan um Waterloo

Jóhann Árelíuz skrifar
14. desember 2025 | kl. 06:00

Gefjun skóp ekki annan Játvarð Loðvík

Orri Páll Ormarsson skrifar
12. desember 2025 | kl. 12:00

Hvenær kemur flugstöðin?

Sverrir Páll skrifar
10. desember 2025 | kl. 17:00

Gráþröstur

Sigurður Arnarson skrifar
10. desember 2025 | kl. 12:30

Þannig týnist tíminn

Ólafur Þór Ævarsson skrifar
08. desember 2025 | kl. 10:00