Fara í efni
Pistlar

Hestar heimsóttu íbúa Lögmannshlíðar

Myndir af Facebook-síðu Heilsuverndar hjúkrunarheimila.

Í síðustu viku fengu íbúar hjúkrunarheimilisins Lögmannshlíðar óvenjulega og skemmtilega gesti þegar þau Baugur og Harpa kíktu í heimsókn. Þeim var reyndar ekki boðið inn í kaffi og með því enda eru Baugur og Harpa hestar og létu sér nægja að vera úti í garði. Íbúar Lögmannshlíðar tóku vel á móti gestunum, klöppuðu þeim og gáfu þeim brauð og nokkrir brugðu sér meira að segja á bak!

Heimsókn Baugs og Hörpu vakti mikla lukku íbúa og hestarnir voru líka kátir enda brauð á boðstólum.

Sagt er frá þessari heimsókn á Facebook-síðu Heilsuverndar, sem rekur hjúkrunarheimilin á Akureyri. Þar kemur fram að starfsmaðurinn Elín Birna hafi komið með Baug og Hörpu og heimsóknin hafi vakið mikla lukku íbúa. „Gleðin skein úr hverju andliti og margir rifjuðu upp gamlar minningar tengdar hestamennsku. Þeir Guðmundur, Jósep og Siggi létu ekki sitt eftir liggja og skelltu sér á hestbak. Það var greinilegt að þeir höfðu engu gleymt og sátu hestana af öryggi og ánægju,“ segir í frásögn af heimsókninni.

Nokkrar myndir fylgja hér en á Facebook-síðu Heilsuverndar er myndasafn frá heimsókninni.

Þröngsýni, sjúkdómur hinna

Ólafur Þór Ævarsson skrifar
16. september 2026 | kl. 20:00

Ættkvísl hlyntrjáa

Sigurður Arnarson skrifar
16. september 2026 | kl. 10:30

Að endurtaka endurtekna þætti

Stefán Þór Sæmundsson skrifar
12. september 2026 | kl. 09:00

Ilmbirki heima og erlendis

Sigurður Arnarson skrifar
09. september 2026 | kl. 09:00

Hvernig hefurðu það, í alvöru?

Hrafnhildur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar
08. september 2026 | kl. 06:00

Hús dagsins: Knarrarberg

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
07. september 2026 | kl. 02:00