Fara í efni
Pistlar

Börn úr Síðuskóla glöddu granna sína

Íbúar og starfsfólk í Lögmannshlíð, hjúkrunarheimili Heilsuverndar í Glerárhverfi, fengu ánægjulega heimsókn á föstudagsmorgun þegar um 100 nágrannar þeirra úr Síðuskóla litu þar við. Þar voru á ferð krakkar úr 5., 6. og 7. bekk skólans sem höfðu staðið fyrir kaffisölu á nýliðinni Barnamenningarhátíð. Hagnaður af því viðskiptatækifæri var alls 85.000 krónur og ákváðu börnin að færa fólkinu í Lögmannshlíð þá fjárhæð að gjöf. Ekki nóg með það heldur fylgdi gjöfinni fallegur söngur gestanna þegar ungir sem aldnir komu saman í blíðskaparveðri í garði fyrir utan heimilið. Þau skilaboð bárust akureyri.net að starfsfólk og íbúar Lögmannshlíðar væru himinsæl og afar þakklát fyrir hugulsemina, sönginn og notalega heimsókn frá nágrönnum sínum.

Djúpslökun og töfrar Jóga Nidra

Hrafnhildur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar
03. nóvember 2026 | kl. 06:00

Afi og amma á Hraunfelli

Jóhann Árelíuz skrifar
01. nóvember 2026 | kl. 06:00

Elrið og þjóðsögurnar

Sigurður Arnarson skrifar
28. október 2026 | kl. 15:30

Mannúðarlánastefna og biksvartur húmor

Rakel Hinriksdóttir skrifar
28. október 2026 | kl. 06:00

Hús dagsins: Hríseyjargata 6

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
28. október 2026 | kl. 01:30

Hús dagsins: Norðurgata 33

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
25. október 2026 | kl. 21:00