Fara í efni
Pistlar

Framboðsfrestur rennur út í kvöld hjá VG

Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir, bæjarfulltrúi Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs, gefur áfram kost á sér í efsta sæti listans.

Frestur til að senda inn framboð og tilnefningar á lista Vinstri grænna á Akureyri fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í maí rennur út á miðnætti í kvöld.

Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir, núverandi bæjarfulltrúi hreyfingarinnar, hefur lýst því yfir að hún gefi kost á sér í oddvitasætið en formaður uppstillingarnefndar gefur ekki upp hvort fleiri framboð hafa borist um að leiða listann. „Listinn verður lagður fyrir félagsfund um miðjan mars en þangað til verða frambjóðendur sjálfir að ákveða hvort þau vilja gera það opinbert eftir hvaða sæti hver sækist,“ segir Sóley Björk Stefánsdóttir formaður nefndarinnar í tilkynningu.

Tekið verður við framboðum og ábendingum fram til miðnættis á netfangið vinstriak@gmail.com.

Edda og ADHD greiningin

Ólafur Þór Ævarsson skrifar
02. mars 2026 | kl. 12:30

Hús dagsins: Lundargata 9

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
01. mars 2026 | kl. 06:00

Innra með okkur öllum er Birtíngur

Rakel Hinriksdóttir skrifar
27. febrúar 2026 | kl. 13:00

Evrópskt gráelri - Fyrsti hluti

Sigurður Arnarson skrifar
25. febrúar 2026 | kl. 10:00

Við getum gert „allt“ … en ekki „allt á sama tíma“

Hrafnhildur Reykjalín skrifar
24. febrúar 2026 | kl. 09:00

Epískar hörmungar í Freyvangi!

Rakel Hinriksdóttir skrifar
23. febrúar 2026 | kl. 16:00