Fara í efni
Pistlar

Berglind nýr oddviti sjálfstæðismanna

Mynd af Facebook síðu Sjálfstæðisflokksins á Akureyri

Berglind Ósk Guðmundsdóttir, lögfræðingur og fyrrverandi alþingismaður, er nýr oddviti sjálfstæðismanna á Akureyri. Hún var kjörin í 1. sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í vor, á röðunarfundi í Naustaskóla sem stendur yfir. Heimir Örn Árnason, núverandi oddviti flokksins, verður í 2. sæti listans. 

  • Þegar kosið var í 1. sæti hlaut Berglind Ósk 61 atkvæði en Þórhallur Jónsson, varabæjarfulltrúi flokksins, hlaut 55 atkvæði. 119 greiddu atkvæði,  þrír atkvæðaseðlar voru auðir eða ógildir. 
  • Heimir Örn Árnason var kjörinn í 2. sæti á fundinum. Heimir Örn hlaut 74 atkvæði og Þórhallur Jónsson 45 atkvæði. 120 greiddu atkvæði, þrír seðlar voru auðir eða ógildir.
  • Arna Rut Gunnarsdóttir var kjörin í 3. sæti listans. Hún Rut hlaut 60 atkvæði og Þorsteinn Kristjánsson hlaut 56 atkvæði. 119 greiddu atkvæði, þrjú voru auð eða ógild. Arna Rut og Þorsteinn buðu sig bæði fram í fyrsta skipti.
  • Þórhallur Harðarson var kjörinn í 4. sæti. Þórhallur hlaut 69 atkvæði og Vilmundur Árnason hlaut 10 atkvæði. 119 greiddu atkvæði. 40 atkvæði voru auð eða ógild.

Fréttin hefur verið uppfærð

Edda og ADHD greiningin

Ólafur Þór Ævarsson skrifar
02. mars 2026 | kl. 12:30

Hús dagsins: Lundargata 9

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
01. mars 2026 | kl. 06:00

Innra með okkur öllum er Birtíngur

Rakel Hinriksdóttir skrifar
27. febrúar 2026 | kl. 13:00

Evrópskt gráelri - Fyrsti hluti

Sigurður Arnarson skrifar
25. febrúar 2026 | kl. 10:00

Við getum gert „allt“ … en ekki „allt á sama tíma“

Hrafnhildur Reykjalín skrifar
24. febrúar 2026 | kl. 09:00

Epískar hörmungar í Freyvangi!

Rakel Hinriksdóttir skrifar
23. febrúar 2026 | kl. 16:00