Fara í efni
Pistlar

Fimm fallegar bækur um ástsæla Múmínálfa

AF BÓKUM – 73

Starfsfólk Amtsbókasafnsins á Akureyri segir lesendum Akureyri.net alla þriðjudaga frá bók eða bókum. Það vekur vonandi athygli á bókakosti safnsins, þar sem af nógu er að taka, og glæðir áhuga sem flestra á bóklestri.
 

Í dag skrifar Dagný Davíðsdóttir_ _ _

Mig langar að mæla með fimm bókum um Múmínálfana frá Máli og Menningu; Sögur úr Múmíndal, Jól í Múmíndal, Dreki í Múmíndal, Ósýnilegur gestur í Múmíndal og Múmínálfarnir og hafshljómsveitin. Þær geyma endursagnir rithöfundanna Ceciliu Davidsson og Alex Haridi á sögum Tove Jansson um hina ástsælu múmínálfa og vini þeirra. Listakonan Cecilia Heikkilä myndskreytir sögurnar og Gerður Kristný íslenskaði.
 

Bækurnar eru fallegar og með passlega mikið af texta og myndum til að lesa þær fyrir 5-10 ára börn. Bækurnar eru fullkomin leið til að kynna sögurnar um Múmíndal fyrir ungum börnum sem eru kannski ekki tilbúin í upprunalegu bækurnar. Ég hef ekki bara tekið þær á bókasafninu heldur hef ég nú safnað þeim þegar bókamarkaðurinn kemur norður og á þær heima. Fínar fyrir safnara. Í framtíðinni ætla ég að vera amman með múmínbollasafnið og múmínbækurnar til að lesa fyrir ömmubörnin.

Bækurnar eru að finna í barnadeild Amtsbókasafnsins í „grænu doppunum“ fyrir utan Jól í Múmíndal sem er uppi í Jóladeildinni í „Gamalt og gott.“

Lárheggur. Sígrænn, blómstrandi krúttrunni

Sigurður Arnarson skrifar
13. maí 2026 | kl. 09:30

Glímt við Selána

Jóhann Árelíuz skrifar
10. maí 2026 | kl. 06:00

Hús dagsins: Sæborg í Glerárþorpi

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
09. maí 2026 | kl. 06:00

Attenborough og trjávernd

Sigurður Arnarson skrifar
08. maí 2026 | kl. 21:00

Að bjarga heyi. Skáldin um landlæsi

Sigurður Arnarson skrifar
06. maí 2026 | kl. 18:00

Persónuleiki og fíkn

Ólafur Þór Ævarsson skrifar
06. maí 2026 | kl. 06:00