Fara í efni
Pistlar

Bókasöfn: Alþjóðleg vika heimsmarkmiða

Hversu oft hugsar þú um heimsmarkmiðin í þínu daglega lífi? Getur verið að þú sért að vinna að þeim án þess að vita af því?

Þannig er spurt í tilkynningu frá Amtsbókasafninu á Akureyri. Tilefnið er að vika 17, sú sem nú er hafin, „er alþjóðleg vika heimsmarkmiðanna á bókasöfnum. Þá eru ýmsir viðburðir og fræðsla tengd heimsmarkmiðunum á dagskrá bókasafna vítt og breytt um landið. Hún fer að jafnaði fram í 17. viku ársins en á Amtsbókasafninu verður haldið upp á vikuna dagana 27.-30. apríl.“

Alla vikuna – Ratleikur tengdur heimsmarkmiðunum á 1. hæð safnsins. Í anddyrinu verður vagn með bókum sem sem tengjast heimsmarkmiðunum ásamt Verkefnablöðum og Plokkbingói sem öll mega taka sér.

Þriðjudagur kl. 16-17 : Sáðu fræi - sáningarverkstæði þar sem við sáum fyrir matjurtum og kryddjurtum og tökum svo með okkur heim. Allur efniviður á staðnum.

Miðvikudagur kl. 17-18: Minni sóun meiri verðmæti - erindi um matarsóun og gervigreind með Dísu Óskars í samstarfi við Slow Food á Íslandi

Fimmtudagur kl. 16:30: Matarsögustund - hvaðan kemur maturinn okkar?

Þetta er í fjórða sinn sem vikan er haldin hér á landi, en verkefnið á uppruna sinn að rekja til Danmerkur. „Í dag taka hátt í 200 bókasöfn frá 12 löndum þátt í því að sýna hvernig við getum öll lagt okkar af mörkum til sjálfbærrar framtíðar. Þema ársins 2026 beinist að heimsmarkmiði númer 2: Ekkert hungur. Sérstök áhersla er lögð á verkefni sem tengjast matvælum, minni matarsóun og hvernig við hugsum um neyslu okkar.“

Er hægt að spila fótbolta svona?

Orri Páll Ormarsson skrifar
10. júlí 2026 | kl. 11:00

Vínviður Vínlands hins góða

Sigurður Arnarson skrifar
08. júlí 2026 | kl. 10:00

Kreppuáll, fuglalíf og ástarglóð

Jóhann Árelíuz skrifar
05. júlí 2026 | kl. 06:00

Hagaskógrækt

Sigurður Arnarson skrifar
01. júlí 2026 | kl. 10:30

Byggðu líkama fyrir lífið

Guðrún Arngrímsdóttir skrifar
30. júní 2026 | kl. 06:00

Hús dagsins: Oddeyrargata 26 (100 ára hús I)

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
29. júní 2026 | kl. 06:00