Fara í efni
Pistlar

Ást, eftirsjá og sorg í bréfum aldraðrar konu

AF BÓKUM – 71

Starfsfólk Amtsbókasafnsins á Akureyri segir lesendum Akureyri.net alla þriðjudaga frá bók eða bókum. Það vekur vonandi athygli á bókakosti safnsins, þar sem af nógu er að taka, og glæðir áhuga sem flestra á bóklestri.
 

Í dag skrifar Aija Burdikova_ _ _

The correspondent : a novel / Virginia Evans

Ég les frekar sjaldan nútímalegar skáldsögur, en kápa bókarinnar The Correspondent greip athygli mína og ég ákvað að lesa hana án þess að vita neitt um innihald hennar. Hún kom mér ánægjulega á óvart. Dóra samstarfskona mín las hana stuttu á eftir mér og var líka mjög hrifin af bókinni, þó að við séum með frekar ólíkan bókasmekk. Fyrir fólk sem notar Goodreads fær bókin 4,54 stjörnur, sem er mjög há einkunn.

Bókin er skrifuð sem samskipti aldraðrar konu að nafni Sybil Van Antwerp í gegnum bréf og tölvupósta á níu ára tímabili. Hún gefur innsýn í starf hennar og einkalíf – ást, eftirsjá og sorg. Hún er skilin, hefur eignast þrjú börn og er komin á eftirlaun eftir margra ára starf sem aðstoðarkona dómara. Hún á erfitt með að tjá sig í tali en er mun betri í að tjá sig skriflega. Á hverjum morgni sest hún niður og skrifar bréf, ekki bara til vina og fjölskyldu heldur líka til annarra, til dæmis rithöfunda sem hún heldur upp á. Hún þróar meðal annars með sér vináttu við mann sem vinnur hjá fyrirtæki sem hún á í tölvupóstsamskiptum við. Sybil fær einnig hótunarbréf sem fær hana til að líta til baka og hugsa um ákvarðanir sem hún tók og breyttu bæði lífi hennar og annarra.

Mér fannst sérstaklega áhugavert að lesa bréfaskriftir hennar, þar sem það er ekki lengur algengt að senda bréf og eiga orð á pappír sem hægt er að lesa aftur eftir langan tíma. Bókin inniheldur bréf sem hún fær, bréf sem hún sendir og jafnvel sum sem hún skrifar en getur ekki sent.

Á Amtsbókasafninu eigum við eintak af bókinni á ensku og á Rafbókasafninu er hún til sem hljóðbók á ensku. Það væri frábært að fá þessa bók þýdda á íslensku.

Lárheggur. Sígrænn, blómstrandi krúttrunni

Sigurður Arnarson skrifar
13. maí 2026 | kl. 09:30

Glímt við Selána

Jóhann Árelíuz skrifar
10. maí 2026 | kl. 06:00

Hús dagsins: Sæborg í Glerárþorpi

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
09. maí 2026 | kl. 06:00

Attenborough og trjávernd

Sigurður Arnarson skrifar
08. maí 2026 | kl. 21:00

Að bjarga heyi. Skáldin um landlæsi

Sigurður Arnarson skrifar
06. maí 2026 | kl. 18:00

Persónuleiki og fíkn

Ólafur Þór Ævarsson skrifar
06. maí 2026 | kl. 06:00