Fara í efni
Pistlar

Ekkert lát á slæmu gengi Þórs og KA

Ingimar Arnar Kristjánsson skorar fyrra mark Þórs í dag. Bjarni Mark Antonsson, til vinstri, braut á Ingimari eftir að hann skaut og fékk gult spjald. Þórsarinn, sem kom inn á í byrjun seinni hálfleiks, meiddist og varð að fara af velli nokkru síðar. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Þór og KA töpuðu bæði í dag í Bestu deild karla í knattspyrnu, efstu deild Íslandsmótsins. Valsmenn sigruðu Þórsara 4:2 á Akureyri og KA-menn lutu í gras í Garðabæ þar sem lið Stjörnunnar sigraði 3:1.

Valsmenn höfðu 2:0 forystu í hálfleik á Vís-vellinum. Ingimar Arnar Kristjánsson minnkaði muninn um miðjan seinni hálfleik og Kristófer Kristjánsson jafnaði skömmu síðar en Valsarar gerðu draum Þórsara að engu með tveimur mörkum í blálokin.

Stjörnumenn voru komnir í 2:0 eftir 20 mínútur gegn KA, fyrst skoraði Emil Atlason og síðan Benedikt V. Warén. Hallgrímur Mar Steingrímsson minnkaði muninn snemma í seinni hálfleik en Þorri Mar Þórisson, fyrrverandi leikmaður KA, gulltryggði sigur Garðbæinga með síðustu spyrnu leiksins.

Þetta var níunda tap Þórsara í 12 leikjum og liðið rann niður í 12. og neðsta sæti deildarinnar í dag því FH gerði jafntefli við ÍBV. Þór og FH eru bæði með 7 stig en Hafnfirðingar með skárri markatölu.

KA hefur nú tapað fimm leikjum í röð og er í 10. sætin, því þriðja neðsta, með 10 stig. 

Staðan í deildinni

Athugið að þegar fréttin er birt er ekki búið að uppfæra stöðuna í deildinni á vef KSÍ en verður vonandi gert innan tíðar.

Nánar um leiki Akureyrarliðanna síðar

Steinþór Már Auðunsson markvörður KA. Hann var besti maður liðsins þrátt fyrir að hafa fengið á sig þrjú mörk. Mynd: Ármann Hinrik

Fór ekki í ljós nema tvisvar í viku

Orri Páll Ormarsson skrifar
26. júní 2026 | kl. 09:00

Skógarbeit

Sigurður Arnarson skrifar
24. júní 2026 | kl. 10:10

Hús dagsins: Oddeyrargata 4

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
21. júní 2026 | kl. 06:00

Hlyntré við veggi

Sigurður Arnarson skrifar
17. júní 2026 | kl. 13:30

Hvað ef þú ert að standa þig betur en þú heldur?

Hrafnhildur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar
16. júní 2026 | kl. 06:00

Í minningu sláttumanna og línumerkjara

Orri Páll Ormarsson skrifar
12. júní 2026 | kl. 13:30